16.11.1987
Sameinað þing: 18. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 985 í B-deild Alþingistíðinda. (650)
59. mál, lífríki Tjarnarinnar í Reykjavík
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég hefði mjög gjarnan viljað láta það afskiptalaust og geta látið það afskiptalaust með öllu og leyfa mér að hafa á því nákvæmlega enga skoðun hvar Reykvíkingar byggja hús yfir sína starfsemi.
Tvennt gerir það að verkum að mér finnst fyllilega eðlilegt og réttmætt að taka þetta mál upp hér á Alþingi. Hið fyrra er að fyrirhuguð staðsetning ráðhússins snertir umhverfisvernd. Það að vernda náttúru og lífríki er sameiginlegt hagsmunamál allra landsmanna, ekki einstakra sveitarfélaga. Tjörnin og næsta nágrenni hennar hér í Reykjavík er sennilega annað af tveimur mestu sérkennum dýralífs og náttúru innan marka höfuðborgarinnar en hitt væru þá Elliðaárnar, laxgengar ár inni í miðri höfuðborginni. Ég held að náttúruverðmæti sem eru á náttúruminjaskrá og setja jafnsterkan svip á sitt umhverfi eins og Tjörnin gerir heyri til sameiginlegra verðmæta allrar þjóðarinnar og það er að sjálfsögðu fyllilega eðlilegt að hv. þm., úr hvaða kjördæmum sem þeir annars eru, hafi á því skoðun.
Hið síðara sem gerir það að verkum að það er bæði tímabært og eðlilegt að ræða svolítið þessa fyrirhuguðu ráðhúsbyggingu hér í Kvosinni er auðvitað hin mikla opinbera starfsemi sem er á svæðinu til viðbótar þessu. Það stendur nú einmitt þannig á, virðulegur forseti, eins og ég veit að virðulegum forseta er manna best kunnugt, að þar hafa menn verið að taka ákvarðanir eða eru að undirbúa ákvarðanir sem hafa mikil áhrif á þetta svæði, Kvosina. Stjórnarráð Íslands og ýmis ráðuneyti hafa verið að festa kaup á húsnæði hér í nágrenninu sem auðvitað þýðir að verið er að búa þeirri starfsemi framtíðarstað hér á svæðinu. Nýlega er búið að byggja yfir Seðlabanka þjóðarinnar, ekkert smáhýsi, og þar verða fleiri opinber embætti eða opinberir aðilar með sína starfsemi. Svo er að síðustu en ekki síst áform Alþingis um byggingu hér á þessari lóð.
Ég held að það sé misskilningur hjá Halldóri Blöndal, hv. 2. þm. Norðurl. e., að stilla málunum upp eins og hann gerði í sinni ræðu. Það stendur ekki til að fara að flytja Alþingi og starfsemi þess hingað í Kvosina. Hér hefur Alþingi verið og starfað í talsvert á annað hundrað ár eins og hv. þm. væntanlega veit. Hann talaði eins og Alþingi hefði verið á Þingvöllum og það stæði til með nýrri byggingu að fara að flytja starfsemi þess í Kvosina. Hún er hér fyrir. Með ráðhúsið gegnir hins vegar öðru máli vegna þess að ég hef skilið það svo, þó ég sé ekki vel að mér um innri málefni Reykjavíkurborgar, að talsverð starfsemi sem fer fram annars staðar eigi að flytjast hingað í hið nýja ráðhús. Þar af leiðandi myndi þessi uppbygging þýða að umferð sem áður hefur beinst að öðrum stöðum í borginni dregst hingað niður í Kvosina. T.d. á öll sú starfsemi sem er inni við Höfða eða inni í Borgartúni væntanlega að koma hingað í hið nýja ráðhús. Það er nákvæmlega þetta sem ég held að Alþingi og forsetar Alþingis, fyrir hönd Alþingis, eigi að ræða við borgarstjórn Reykjavíkur. Er það ekki meiningin að Alþingi verði til húsa og starfi hér á þessi svæði? Og er ekki líklegt að ef ein stórbygging, eins og ráðhús hér við Tjörnina, mætir svona mikilli andstöðu verði andstaðan tvöfalt meiri ef hér eiga að fara að rísa tvær stórbyggingar svo að segja samtímis á þessu viðkvæma svæði?
Ég legg því til, virðulegur forseti, að hugað verði að því, á meðan tími vinnst til, að ræða þessi mál í samhengi og við borgarstjórn og borgarstjóra Reykjavíkur. Ef ekki sýnist mér miðað við áætlaðan framkvæmdahraða hjá borginni og þann mikla kraft sem virðist nú allt í einu eiga að setja í þessa ráðhúsbyggingu, á sama tíma og hv. Alþingi fer sér rólega, sem eðlilegt er, og vill vanda til við úrlausn á sínum húsnæðismálum, að við hv. alþm. stöndum frammi fyrir gerðum hlut, þetta ráðhús verði þegar komið af stað þegar til þess kemur að taka ákvörðun um frekari uppbyggingu hér á Alþingi. Og þá fer kannski svo að það kemur í hlut Kópavogs eða annarra nágrannasveitarfélaga að leggja fleirum til land undir höfuðstöðvar sínar en Sambandinu einu.