17.11.1987
Efri deild: 10. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1013 í B-deild Alþingistíðinda. (658)

63. mál, lánsfjárlög 1988

Forseti (Guðrún Agnarsdóttir):

Að gefnu tilefni þá vil ég taka það fram að ég vil gjarnan gera mitt besta til að taka þátt í störfum þingsins og greiða fyrir þeim á allan veg en hins vegar uni ég því ekki að meðan ég sinni því þá sé ég karlkennd. Ég er kona og get því aldrei orðið „herra“. Eysteinn Jónsson er eflaust merkilegur maður, en hann er ekki almáttugur og því úrskurður hans ekki einhlítur. Það hlýtur hver að þurfa að gera upp við sig hvernig hann ávarpar konu og hvernig hann ávarpar karl. Sjálf hef ég valið ef kona er ráðherra t.d. að segja ævinlega „hún“, mér finnst eðlilegra að kvenkenna konur og karlkenna karla og er það hvorugu til hnjóðs að mínu mati. (HBl: Þá liggur það fyrir.)