17.11.1987
Efri deild: 10. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1037 í B-deild Alþingistíðinda. (669)

106. mál, dagvistun barna á forskólaaldri

Danfríður Skarphéðinsdóttir:

Forseti. Ég vil fyrir mitt leyti fagna því frv. til laga sem hér hefur verið lagt fram og lýsa yfir fullum stuðningi við efni þess. Jafnframt vil ég minna á frv. um sama efni sem flutt var af Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur, þingkonu Kvennalistans á síðasta kjörtímabili, þar sem hún lagði til að tímabundið skyldi a.m.k. 0,8% af A-hluta fjárlaga hvers árs varið til byggingar dagvistarheimila fyrir börn þar til þörf yrði fullnægt.

Þá vil ég einnig fagna því að hv. flm., 7. þm. Reykv., hefur komið auga á betri leið til að leysa þennan vanda en að semja um slíkt sjálfsagt réttlætismál í kjarasamningum, einhvers konar þjóðarsátt. Hann ætti í starfi sínu að hafa komist að því fyrir löngu að sjaldnast er staðið við þær.

Hann vitnaði í grg. til ákvæðis í samkomulagi við ríkisstjórnina frá 1980 um tíu ára áætlun til uppbyggingar dagvistarheimila. Samkvæmt henni var áætlað að leggja þyrfti fram ýmist 30 eða 50 millj. kr. árlega eftir því út frá hvaða forsendum var gengið. Þessar tölur voru miðaðar við verðlag 1980. Strax á fyrsta ári þessa kjarasamnings var þetta ákvæði þverbrotið með aðeins 11 millj. kr. framlagi. Í janúar 1983 hefði framlagið miðað við upphaflega áætlun um 30 millj. átt að vera 48,9 millj. kr., framreiknað, en það árið fengust aðeins 27 millj. kr. í þetta verkefni. Árið 1984 var veitt til dagvistarmála 31 millj. 640 þús. kr., sem á þeim tíma hefði átt að vera 75,8 millj. kr., og sú tala er einnig miðuð við þessa forsendu um 30 millj. kr. þörf. Stjórnvöld hafa þannig þverbrotið gefin loforð æ ofan í æ og enn eru óuppgerðar skuldir ríkisins við sveitarfélögin vegna byggingar dagvistarheimila himinháar.

Í grg. hv. flm. um það hve stór hluti af tekjum útivinnandi maka, sem í langflestum tilfellum eru konur, fer beint í ríkissjóð, þá vil ég ítreka það sem skoðun mína að m.a. með hliðsjón af þessu þá hlýtur það að vera skylda ríkisins að taka sinn þátt í þessum kostnaði. Hv. flm. sagði líka að konur hefðu sótt út á vinnumarkaðinn. Það er að hluta til rétt, en ég vil gjarnan líka fá að breyta setningunni í þolmyndarsetningu og segja: Konur hafa verið sóttar út á vinnumarkaðinn bæði af efnahagslegum ástæðum og vegna þarfa vinnumarkaðarins. Allir vita að fæstum nægir ein fyrirvinna til að framfleyta fjölskyldu. Um leið og vinnumarkaðurinn kallar æ fleiri konur til sín, þá eykst til muna þörfin fyrir aukið dagvistarrými. Nú er svo komið að neyðarástand og algjört öngþveiti ríkir í þessum málum.

Það er ekki hægt að minnast á dagvistunarmálin án þess að minna um leið á hin löku starfs- og launakjör þeirra sem á barnaheimilum starfa. Það þarf að gera átak í að meta að nýju störf þeirra stétta sem sinna mikilvægum uppeldis- og umönnunarstörfum. Þau eru allt of lágt metin til launa.

Íslenskt nútímasamfélag gerir svo sannarlega ekki ráð fyrir börnum. Vegna hins óheyrilega langa vinnutíma flestra vinnufærra Íslendinga gefst foreldrum lítill tími til samveru með börnum sínu. Vonandi breytist þetta þó þegar áætlanir hæstv. ríkisstjórnar um styttingu vinnutímans komast í framkvæmd, sem vonandi verður sem fyrst. Nú er því miður enginn fulltrúi ríkisstjórnarinnar hér inni að því er ég best fæ séð. En það hefði verið ágætt ef þeir hefðu heyrt þessa hvatningu mína um að þessar áætlanir komist í framkvæmd hið allra fyrsta. Það er ekki hægt að leggja ómældar áhyggjur af öryggi og velferð barna ofan á óhóflegt vinnuálag foreldra og á sama hátt er alls ekki hægt að ætla ungum börnum að ganga sjálfala í samfélagi okkar.

Þá vil ég líka benda á að það ætti að vera sjálfsagt val foreldra að geta sent börn sín á dagheimili, a.m.k. hluta úr degi, hvort sem báðir foreldrar vinna úti eða ekki. Því það er í langflestum tilfellum jákvæð lífsreynsla fyrir börn að taka þátt í leik og starfi með öðrum jafnöldrum. Okkur hættir um of til að vilja aðeins lifa hér og nú, án þess að hugsa um framtíðina. En hún er einmitt börnin sem eru að alast upp í landinu. Það er því nauðsynlegt að vel sé búið að öllum einstaklingum í þjóðfélagi okkar á þeim mikilvægu mótunarárum sem fyrstu æviárin eru.

Talandi um framtíðina leyfi ég mér að lokum að vitna í grein Kristínar Sigtryggsdóttur í DV í gær, 17. nóvember, þar sem hún fjallar um dagvistarvandann og segir m.a., með leyfi forseta:

„Það er ekki skrýtið að barneignum skuli fækka því hver vill búa við slíkt óöryggi sem ríkir í dagvistarmálum hér?" Þetta er umhugsunarefni fyrir þá sem mestu ráða um forgangsröð verkefna hér á landi í dag.