17.11.1987
Efri deild: 10. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (673)

106. mál, dagvistun barna á forskólaaldri

Forseti (Guðrún Agnarsdóttir):

Ég vildi aðeins geta þess að ég hef leitað ráða hjá skrifstofu Alþingis um hvaða nefnd væri heppilegust fyrir þetta mál. Sjálf mundi ég álíta að það ætti heima í hvaða nefnd sem væri, svo mikið snertir það alla þætti atvinnulífsins og þeirra mála sem hér er um fjallað. En skrifstofa Alþingis og forseti geta vel fellt sig við uppástungu flm. um að málið verði sent til menntmn.