15.10.1987
Sameinað þing: 3. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í B-deild Alþingistíðinda. (68)
24. mál, ráðstafanir í ferðamálum
Flm. (Pétur Bjarnason):
Herra forseti. Ég þakka þær góðu undirtektir sem þessi till. til þál. hefur fengið og þann stuðning sem ferðamál hafa fengið við þessa umræðu.
Við hv. 10. þm. Reykn. vil ég segja að hún nefndi þáltill. vorið 1986. Það er síður en svo að þessi þáltill. sé sett henni til höfuðs eða neitt slíkt heldur er einmitt sú þáltill. um úttekt á afstöðu til ferðaþjónustu á helstu ferðamannastöðum í einstökum landshlutum kveikjan að því að ég flyt þessa till. Ég vænti þess að þm. hafi séð skýrslu sem heitir „Úttekt á íslenskum ferðamálum“. Þessi skýrsla er fróðleg lesning og fremur sorgleg, ekki síst fyrir Vestfirðinga. Hún sýnir mér að það vantar sorglega mikið á, jafnvel þó við fengjum ferðamenn til að koma á Vestfirðina, að við gætum tekið á móti þeim. Ástæðan fyrir því að þessi þáltill. kemur fram er einmitt þessi skýrsla sem er komin til vegna þáltill. Alþingis vorið 1986.
Ég held að menn skilji ósköp vel hversu þýðingarmikill þessi þáttur verður á næstu árum í íslensku atvinnulífi og þjóðlífi. Ég vil taka fram að till. er í þremur liðum og ég á von á að það geti komið til atkvæðagreiðslu um hvern lið fyrir sig, en 1. liðurinn, um ferðamálafulltrúa, er kannski fyrsta kveikjan að því að till. er flutt. En ég get ekki komið hér upp og flutt till. um ferðamál án þess að geta um það, sem ég tel að hafi verið misráðið, að það skuli áætla þennan tekjustofn til ferðamála og skerða hann síðan nær alltaf. Á síðasta ári, ég held að ég fari rétt með, var það um þriðjungur þessa 10% fjár sem rann til ferðamála og núna 28 millj. eins og hér hefur komið fram. Ég gat ekki komið hér upp án þess að þetta kæmi fram, jafnvel þó að eftir að ég samdi þessa till. væri komið fram fjárlagafrv. sem væri enn með ákvæði í lánsfjárlögum þess efnis að þetta skyldi skert.
En ef menn hafa tekið eftir því í framsögu stillti ég tvennu saman. Ég bið menn að athuga það. Liður nr. 2 er kannski ekki eingöngu settur fram til þess að á honum verði tekið í þessum fjárlögum heldur til að vekja athygli á honum og einnig 3. lið, um endurskoðun laga um skipulag ferðamála. Það er gert í samráði við framkvæmdastjóra Ferðamálaráðs. Ég bið um að því verði stillt saman við þessa endurskoðun hvort það eigi að halda áfram að hafa þennan lið inni til þess eins að skerða hann eða hvort það eigi að finna tekjustofn sem menn treysta sér til að standa við. Þetta er kannski meginefnið en ekkí það, sem menn hafa gert mjög að umtalsefni hér, að hér væri verið að stilla fram einhverju gegn fjárlögum. Það er ekki svo og þess vegna er till. í þremur liðum.
Að sjálfsögðu væri mér samt annað kærast, vegna þess að ég hef trú á því að ferðamál séu okkur verulega þýðingarmikil, og ég er ekki sammála því að þessi liður verði skertur í lánsfjárlögum. Það er mín persónulega skoðun. Ég kem með þessa till. og ég sem hana áður en fjárlög verða til. Fjárlög eru lögð fram í frv. og þau eru ekki heilagari en svo að það má ræða þau. Það bið ég menn að athuga.