18.11.1987
Sameinað þing: 19. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1085 í B-deild Alþingistíðinda. (691)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. kjörbréfanefndar (Steingrímur J. Sigfússon):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur farið yfir bréf frá Ásmundi Stefánssyni, 1. varamanni Alþb. í Reykjavík, þar sem hann skýrir frá því að vegna anna þurfi hann að hverfa af þingi og óskar eftir því að 2. varamaður Alþb. í Reykjavík, Álfheiður Ingadóttir, taki sæti á Alþingi í hans stað. Þá hefur kjörbréfanefnd farið yfir kjörbréf Álfheiðar Ingadóttur, 2. varamanns Alþb. í Reykjavík, og sér ekkert athugavert við það og leggur til að það verði samþykkt.