23.11.1987
Sameinað þing: 20. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (729)

94. mál, þjónustumiðstöð fyrir heyrnarskerta

Unnur Stefánsdóttir:

Hæstv. forseti. Ég tel að hérna sé hreyft mjög þörfu máli sem hv. 18. þm. Reykv. flytur ásamt fleiri mönnum. Það er margt ótrúlegt sem viðgengst í okkar þjóðfélagi svo sem eins og ýmis málefni sem snerta heyrnarskerta og það hefur einmitt komið fram í máli þeirra sem hafa talað.

Það hefur komið fram að heyrnarskertir hafa haft textasíma í þjónustu sinni líklega í allt að tíu ár, en þeir búa við mikið óöryggi varðandi ýmsa þjónustu. M.a. hafa þeir ekki þá aðstöðu að geta náð í lækni, lögreglu eða slökkvilið þegar á þarf að halda vegna þess að þessi símaþjónusta er ekki fyrir hendi þannig að þeir geti náð í þetta fólk eins og við hin getum gert sem erum heyrandi. Ég get sagt ykkur frá einu dæmi frá því í haust. Íþróttafélag heyrnarskertra var að fara til útlanda og þar sem ekki var möguleiki á að hringja til að segja hópnum sem átti að fara hvenær flugvélin færi varð einn fulltrúi félagsins að keyra til allra sem áttu að fara í þessa ferð til að segja þeim hvenær flugvélin ætti að leggja af stað. Þið getið ímyndað ykkur hvað það getur verið mikil vinna að koma boðum um svona sjálfsagðan hlut eins og okkur finnst sem erum heyrandi.

Ég fagna því að hæstv. félmrh. hefur skipað nefnd til að vinna að málefnum heyrnarskertra og vona að þeim verði ýtt áfram og það hið fyrsta. Ég styð till. hv. 18. þm. Reykv. og vona að málefnum heyrnarskertra verði unninn framgangur.