23.11.1987
Sameinað þing: 20. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1131 í B-deild Alþingistíðinda. (731)
94. mál, þjónustumiðstöð fyrir heyrnarskerta
Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Ég ætla að lýsa ánægju minni með þessa till. til þál., sem hefur verið borin fram af Þórhildi Þorleifsdóttur og fleiri þm. Kvennal., og jafnframt yfir því, sem ég heyri að hæstv. félmrh. hefur sagt, að hún hafi nú þegar undið sér í þetta mál til að vinna að framgangi þessa málaflokks. Ég hygg að við, sem urðum þeirrar ánægju aðnjótandi að vera á kosningafundi með þessu fólki, höfum gert okkur grein fyrir því að þörf þess sé mikil til að hafa boðskipti og einmitt það að textasíma sé komið á fyrir allflesta hefur mikið að segja. Ýmis málefni sem varða þennan hóp hafa greinilega orðið út undan eins og hæstv. félmrh. nefndi. Ég vona að úr því verði bætt því mér er ljóst að þessi hópur hefur orðið mjög afskiptur, hann hefur átt erfitt með að koma málum sínum á framfæri. Ég er alveg sannfærður um að það þarf ekki að kosta neinar stórar fjárhæðir og það má jafnframt bæta hag þessa fólks töluvert. En það þarf að geta tjáð sig eins og við, sem getum tjáð okkur með því að tala í síma dagsdaglega. Og við vitum að það yrði slæmt ef við misstum símann. Við getum ímyndað okkur hvernig við stæðum þá, hvað þá að þetta fólk skuli ekki hafa möguleika á að koma sínum boðum á milli, en það mundi gjörbreyta lífi margra þessara manna og kvenna sem þannig er ástatt um.
Ég vil þakka hæstv. félmrh. og flm. fyrir að hreyfa þessu máli.