23.11.1987
Sameinað þing: 20. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1144 í B-deild Alþingistíðinda. (758)

107. mál, lýsing á Suðurlandsvegi um Hellisheiði

Óli Þ. Guðbjartsson:

Hæstv. forseti. Ég kveð mér hljóðs til að taka undir þá till. sem hér er flutt og í leiðinni að þakka ágætum flm. frumkvæði þeirra. Ég býst við að ég hefði verið meðal þeirra ef ég hefði verið á landinu þegar málið var undirbúið, en vil ekki láta hjá líða að láta í ljós skoðun mína. Ég tel þetta hið gagnmerkasta mái.

Bráðum verður öld liðin frá því að lokið var fyrstu framkvæmd sem nafni getur nefnst í samgöngumálum á Íslandi, þ.e. byggingu Ölfusárbrúar. Þess afmælis verður minnst 1991. Ekki væri úr vegi að sú framkvæmd sem hér er um að ræða væri orðin að veruleika á því afmæli.

Suðurland hefur sérstöðu um margt, þá mesta þó að vera hafnlítið landsvæði og það svæði landsins sem á mest undir samgöngum á landi. Það fer ekki milli mála að sá fjallvegur sem þarna er verið að tala um, Hellisheiðin, er fjölfarnastur hér á landi, auðvitað vegna nálægðarinnar við höfuðborgarsvæðið. Það þykir ekki tiltölumál hér niðri í byggð þó að upplýst sé á milli byggða um langar vegalengdir. Þess vegna er það í rauninni ekkert tiltökumál að sinna því að lýsa þá fjallvegi upp sem fjölfarnastir eru eins og Hellisheiðin.

Það kemur fram í grg. flm. að veðrabelti eru mörg á þessari leið. Það þekki ég vel. Ég hef farið um heiðina í mörg ár og ekki síst nú þessa ágætu veðurdaga í haust. En ég vil leggja áherslu á að það veður á þessari leið sem mér er einna leiðast er þokan. Þess vegna held ég að það verði ekki of mikil áhersla lögð á það atriði í grg. flm. að hér er um að ræða slysavörn í verulegum atriðum. Og í lokin sakar ekki að geta þess að orkan sem um er að ræða kemur þó alltént af Suðurlandi.