24.11.1987
Efri deild: 12. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1152 í B-deild Alþingistíðinda. (766)

130. mál, meðferð einkamála í héraði

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingdeildarmönnum fyrir athugasemdir og ábendingar. Ég vil víkja örfáum orðum að tveimur eða þremur þeirra atriða sem hv. 11. þm. Reykv. drap á í sinni ræðu.

Hann nefndi að í 9. gr., þar sem lýst er gerð stefnu, hafi því nú verið breytt að ekki sé lengur vitnað til nafnnúmers. Ástæðan fyrir því er einföld. Hún er sú að nafnnúmerin eru á leið út úr kerfinu. Í þeirra stað mun koma önnur tala, kennitala svonefnd, heiti sem e.t.v. hefur enn ekki unnið sér fastan sess eða formlegan. Þess vegna þótti ekki ástæða til að festa nafnnúmerið í lög, sem eiga að gilda nokkur ár a.m. k., og nafn nægi og í skráningarkerfi nútímans muni jafnan fylgja nafni rétt númer og þá líklega ekki nafnnúmer heldur önnur auðkennistala.

Þetta vildi ég hafa nefnt til að skýra að þessi breyting er ekki tilviljun, en að öðru leyti er það rétt hjá hv. 11. þm. Reykv. að breytingin sem gerð er á 88. gr. gildandi laga um meðferð einkamála í héraði er að öðru leyti eingöngu fólgin í breytingu á d-lið þeirrar greinar, en þar er aukið við orðum. Áður hljóðaði d-liður svo: „Málsástæður, svo og önnur atvik sem þörf er að greina samhengis vegna“. Nú hefur þarna bæst við: „Málsástæður sem sækjandi byggir malsókn sína á, svo og önnur atvik sem þörf er að greina samhengis vegna. Lýsing þessi skal vera stuttorð og gagnorð og svo skýr að ekki fari á milli mála hvert sakarefnið er.“

Þessar tvær viðbætur eða fleygar eru áreiðanlega tilkomnar vegna reynslu dómaranna af því hvernig stefnur hafa verið gerðar.

Þetta var aðalatriðið. Hvað varðar nafnnúmerið vona ég að því verði vel til skila haldið í framtíðinni, en er alveg sammála hv. 11. þm. Reykv. um að það sé rétt að huga vandlega að þessu og öðru í nefnd.

Þá er það ábendingin um að hugsanlega sé misræmi á milli 20. gr. með nýju vaxtaákvæðunum og því sem segir í j-lið 25. gr., sem verða á 231. gr., í kaflanum um áskorunarmál, um það hvernig vaxtareikna skuli kröfur. Ég tel að þarna þurfi að athuga vel að ekki sé munur á. Það er ekki meiningin að þarna sé gerður munur. Vaxtareikningurinn á að vera eins eðli málsins samkvæmt. Vel mætti þó hugsa sér að lögjafna þarna á milli kaflanna eftir að áskorunarmálin eru orðin kafli í sömu lögum, en ekki ætla ég að teljast lögfróður í þessu efni. Þetta vildi ég þó nefna.

Ég tel sjálfsagt að nefndin líti á ábendingar hv. 11. þm. Reykn. um löggilta pappírinn eins og allt annað sem í málinu vakir og vildi að endingu taka undir með hv. 8. þm. Reykv. að mikil þörf sé á því að Alþingi sinni réttarfarsmálefnum af röggsemi og skörungsskap. Það er eftir því spurt í þjóðfélaginu og við þeirri spurn þarf Alþingi að kunna svör.