24.11.1987
Efri deild: 12. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1156 í B-deild Alþingistíðinda. (769)

131. mál, hlutafélög

Eyjólfur Konráð Jónsson:

Herra forseti. Á Alþingi 1977–1978 voru geysimiklar umræður um félagamálefni og sérstaka nýja hlutafélagalöggjöf sem í undirbúningi var og síðan lögfest sem lög nr. 32/1978. Ég hygg að sú löggjöf sé með hinum merkustu í hlutafélagalöggjöf nágrannalandanna. Þar var höfð hliðsjón af miklu starfi sem samnorræn nefnd hafði unnið að með samræmingu á Skandinavíurétti og rétti hvers einstaks ríkis. Margt í þessari merku löggjöf er þangað sótt en þó höfð mjög hliðsjón af bandarískum rétti eða engilsaxneskum þannig að ýmiss konar frjálsræðisákvæði sem nú eru í lögum voru þangað sótt. Ég hygg að sjaldan hafi fjh.- og viðskn. hv. Alþingis síðan ég kynntist því unnið meir að einu máli en einmitt því.

Ég er ekki viss um að allar þær brtt. sem nú eru fluttar eigi rétt á sér og séu til bóta á núgildandi löggjöf. Sumar eru það vafalaust. Nú er komin nærri því áratugar reynsla á þessi hlutafélagalög. Þau geta þess vegna kannski talist vera orðin gömul þó að þau hafi vissulega falið í sér miklar nýjungar þegar þau voru sett, t.d. bann við því að takmarka meðferð hlutabréfa þar sem hluthafarnir eru af ákveðinni tölu. Þannig var fyrirbyggt að menn gætu hindrað sölu þessara verðmæta bara til þess að tryggja sín eigin réttindi. Þar var afnumið t.d. að stjórnir félaganna mættu fara með atkvæðamagn fyrir hlutafé sem félögin sjálf áttu, sem hafði verið tíðkað hér, og tekin voru upp ákvæði um hlutfallskosningar og margfeldiskosningar, sem var nýtt í íslenskum lögum þá, sótt í engilsaxneskan rétt, og svona mætti lengi telja. Mig minnir að það hafi verið eitthvað á milli 70 og 80 brtt. sem voru fluttar af nefndinni eftir að undirbúningur hafði verið gífurlega vandaður af mörgum okkar bestu lögfræðingum um langt skeið eins og ég áðan vék að.

Ég fagna því hins vegar að frv. skuli nú vera flutt aftur með áorðnum breytingum. Lögmenn hafa margir hverjir um það fjallað og komið með ýmiss konar ný atriði sem vissulega voru rædd og þrautrædd á þessum tíma, t.d. það hvort einn maður mætti stofna hlutafélag. Nú er talað um tvo. Okkur þótti nú gamla reglan alveg nægja, að fimm væru lágmark. Það samræmist varla íslensku tungutaki að tala um félag nema mennirnir séu þrír, fjórir eða fimm og það háir mönnum ekkert að stofna hlutafélög þó að einstaklingarnir þurfi að vera fimm. Þetta er auðvitað algjört aukaatriði. Ég skal ekki ræða um það frekar. Ég hygg að öll þessi atriði sem í frv. eru, þar á meðal um atkvæðisréttarlaus hlutabréf, megi framkvæma eftir núgildandi lögum, en það er ekkert á móti því að taka það skýrt fram. Og eins er skuldabréfaútgáfa þar sem heimilt er fyrir hluthafana síðar meir að breyta sínum skuldabréfum, sínum lánum til félaganna í hlutabréf, í hlutafé, ef félagið hefur gengið vel og menn vilja eignast hluti í því þá geti þeir breytt sínum skuldabréfum í hlutafé. Það auðvitað ætti að hvetja menn til þess að nálgast slík félög með þeim hætti að hafa nokkurn veginn trygg skuldabréf en þar að auki að hafa réttinn til að breyta þeim í hlutafé ef félagið hefur verulega hagnast. Margt af þessu er einmitt sótt í bandarískan rétt þar sem frjálsræði í hlutafélagastarfsemi er miklu meira eða hefur verið í gegnum tíðina en í ýmsum Evrópulöndum þar sem yfirvöld hafa takmarkað völd félaganna. Það er auðvitað gömul saga að þó að hlutafélögin séu gífurlega merkilegt fyrirbæri og hafi allar götur frá 17. öld og lengur raunar, 16. öld, verið undirstaða að verulegri atvinnuuppbyggingu, t.d. í Hollandi og Bretlandi, á veldistíma þessara þjóða, og mikil auðlegðarsöfnun, komu auðvitað upp vankantar á þessu félagaformi á 18. og 19. öldinni sem varð til þess jafnvel að þetta félagaform var meira og minna bannað eða heft í störfum um skeið. En síðan hafa menn auðvitað lært af reynslunni.

Kannski er merkilegasta almenningshlutafélag sem sögur greina einmitt íslenskt, þ.e. Eimskipafélag Íslands. Þar var atkvæðisréttur hluthafa mjög takmarkaður og dreifður. Það voru nánast allir landsmenn hluthafar í félaginu upphaflega. Hins vegar varð niðurstaðan sú mjög fljótlega að menn gengu ekki eftir arðgreiðslum. Þetta var mikið til gert af hugsjónastarfsemi og þegar menn fengu ekki arð og byrjuðu jafnvel að týna sínum bréfum tók tiltölulega fámennur hópur af sjálfu sér völdin þarna. Menn voru endurkosnir til stjórnarstarfa og síðan hélt það áfram að skattlagning var sett a arðgreiðslur með þeim hætti að það var varla í hag hluthafanna að fá neinn arð. Það var sem sagt ekki nógu góð reynsla af því að þarna væri almenningur raunverulega við stjórnvölinn nema fyrstu árin og það voru stjórnvöld sem þar gripu inn í illu heilli, menn skildu ekki mikilvægi þessa félagsforms á þessum árum, mörg önnur merkileg íslensk hlutafélög eins og Sjóvátryggingafélag Íslands og svo mætti lengi telja. Ég er ekki að fara út í það. En atvinnulíf á Íslandi var byggt upp á fyrstu áratugum aldarinnar með svona samtökum. Þar komu svo samvinnufélögin til líka og þess vegna á að huga að breytingum á þessum lögum alltaf á hverjum tíma og aðlaga þau breyttum aðstæðum.

Því tek ég til máls að ég legg áherslu á það að nú verði unnið að því á Alþingi að fara í gegnum þessar tillögur og sjá hvað af þeim er nýtilegt og hvað þar er til bóta. Sumt er fremur til að hamla þessari starfsemi, hygg ég, en allt þarf það að ræðast og yfirvega. Ég á sæti í þeirri hv. þingnefnd sem málinu verður væntanlega vísað til og mun þar koma á framfæri mínum athugasemdum að sjálfsögðu af því að ég hef haft mjög mikinn áhuga á einmitt þessari starfsemi um langt skeið. Hér höfum við engin öflug almenningshlutafélög en það er grundvallaratriði fyrir velmegun og framförum í þjóðfélaginu og réttlæti og réttri eignaskiptingu að fjármagn dreifist meira á meðal landsmanna allra og að sem flestir geti orðið þátttakendur í meiri háttar félögum, þeir sem þá ekki reka sín eigin minni félög. Og auðvitað eiga líka landsmenn allir að eiga svo og svo mikið af skuldabréfum, skuldabréfum sem t.d. ríkið gefur út og jafnvel auðug bæjarfélög eins og t.d. okkar ríka borg. Fólkið á auðvitað að geta aðstoðað við opinbera uppbyggingu með öðrum hætti en þeim að vera svipt alltaf eignarráðum á fjármununum. Þeir koma að sama gagni þótt þeir séu lánaðir til ríkisvaldsins eða bæjarfélaga eins og tíðast er erlendis. Þar fjármagna opinberir aðilar ákveðnar framkvæmdir, ekki með því að svipta fólk eignarráðum með ofurþungum sköttum, heldur með því að leyfa mönnum að halda eignarráðunum eða að þessar stofnanir borgaranna sjálfra fái ákveðin yfirráð yfir peningunum á meðan þeirra er þörf og gefi þó ávísanir á þann gífurlega auð sem er auðvitað á opinberum höndum, bæði hér á landi og annars staðar.

Þetta miðar allt að bættu skipulagi þessara mála. Hugsunin hjá þeim sem staðið hafa að þessum brtt. er nákvæmlega sú sama og mín, en ég hygg ekki að endilega þurfi að samþykkja allt sem þessir menn leggja fram til breytinga á þessari merku löggjöf, heldur verði að skoða það í hverju einstöku tilfelli. Það er hins vegar gott að málið er komið til umræðu.