24.11.1987
Neðri deild: 14. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1172 í B-deild Alþingistíðinda. (779)
116. mál, læknalög
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
Herra forseti. Varðandi athugasemdir hv. 12. þm. Reykv. um frv. vil ég aðeins vísa nánar til athugasemda sem því fylgja og benda jafnframt á að því miður hafa athugasemdir við einstakar greinar ekki verið prentaðar með þessu nýja þskj., þskj. 120, og verð því að vísa til athugasemda við einstakar greinar í þskj. 178 frá síðasta þingi, sem var 168. mál Ed., en þar eru athugasemdir við einstakar greinar. Grg. er sú sama og í því þskj. sem hér er prentað upp í þetta nýja þskj. Ég bið hv. þm. velvirðingar á því að athugasemdir við einstakar greinar hafa ekki fylgt þar með, en það ætti að vera auðvelt að fá þær. Heilbr.- og trn. ætti að eiga auðvelt með að fá þær athugasemdir til að vinna upp úr og hafa til hliðsjónar þegar farið er yfir frv. í nefndarstörfum. Að öðru leyti tel ég sjálfsagt og eðlilegt að nefndin taki þær athugasemdir, sem komu fram frá þeim hv. þm. eins og öðrum hér, til skoðunar við sitt verk.
Varðandi athugasemdir hv. 13. þm. Reykv. vil ég í fyrsta lagi leiðrétta það að ég kynnti ekki brtt. Ég kynnti aðeins athugasemdir, sem höfðu borist heilbr.- og trmrn. frá Ríkisendurskoðun og tryggingayfirlækni, við þetta frv. eftir að það var lagt hér fram. Af því að hv. þm. spurði hvaðan þessar athugasemdir og tillögur til breytinga, eins og þær bera hér yfirskriftina, væru komnar er því til að svara að þær eru frá Ríkisendurskoðun og tryggingayfirlækni.
Hv. þm. spyr hvort þessar breytingar kunni að stangast á við lög um almannatryggingar, svo og verksvið tryggingayfirlæknis. Ég vil aðeins vísa aftur til þess sem ég sagði áðan að heilbr.- og trn. taki þessar ábendingar til skoðunar þegar nefndin fer yfir frv. og þá að sjálfsögðu hvort það kunni að stangast á við önnur lög og gera málið flóknara en það virðist þó í fyrstu. En ég bendi á það í sambandi við athugasemdir hv. þm. að í rökstuðningi með þessum brtt., sem hér er greint frá, segir m.a., eins og ég las reyndar upp áðan og ætla að gera aftur:
„Í samningum sem nýlega voru gerðir á milli Tryggingastofnunar ríkisins og Læknafélags Reykjavíkur um sérfræðilæknishjálp er gert ráð fyrir að tryggingayfirlæknir hafi heimild til að fara á stofur sérfræðinga og skoða sjúkraskrár með tilliti til samanburður við reikninga. Í samningi Tryggingastofnunar ríkisins við heimilislækna er einnig samsvarandi ákvæði. Þannig ríkir einhugur á milli læknasamtakanna og Tryggingastofnunar ríkisins um það atriði að eftirlit sé nauðsynlegt.“ Það eftirlit sé þá jafnframt í höndum tryggingayfirlæknis. Þetta vildi ég bara ítreka, það koma reyndar fram í framsögu minni áðan. Hugmyndin sem hér er sett fram er aðeins sú að þetta sé gert að ótvíræðri lagaheimild.
Varðandi það hvort læknar séu einfærir um að gera eða skrifa sína reikninga, þá efast ég ekki um að þeir séu það. Hættan er kannski fremur sú að sumir þeirra séu of liprir við að skrifa reikninga og það sé e.t.v. ástæða til þess að í lögum sé skýrt ákvæði um það að Tryggingastofnunin og þá tryggingayfirlæknir eða annar embættismaður stofnunarinnar, sem ég hygg að geti varla verið annar en tryggingayfirlæknir, hafi heimild til að endurskoða eða skoða sjúkraskrár og bera saman við reikninga. Mér er kunnugt um að af þessari ástæðu auðvitað er þessi tillaga fram komin frá tryggingayfirlækni og frá Ríkisendurskoðun.
Að öðru leyti ætla ég ekki að ræða á þessu stigi um lagaákvæði almannatryggingalöggjafarinnar. Ég býst við því að til þess gefist næg tækifæri síðar.