24.11.1987
Neðri deild: 14. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (780)
116. mál, læknalög
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Vegna þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram, þó að skýringar hafi komið fram frá hæstv. ráðherra í sambandi við það sem þarf að fylgja þessu frv., þá vil ég nota tækifærið og taka undir skoðanir og viðvörunarorð hv. 13. þm: Reykv. í sambandi við embætti tryggingayfirlæknis hjá Tryggingastofnun ríkisins. Ég vænti þess að þegar fram kemur frv., sem raunar hefur verið boðað, um endurskoðun á tryggingalöggjöfinni, þá komi þetta mál frekar til umræðu. En mér finnst ástæða til að taka undir þau orð sem hv. þm. viðhafði í sambandi við þetta mál. Það hefur verið rætt áður í þessari þingdeild að þarna er um að ræða embætti sem ég tel að sé löngu tímabært að taka til rækilegrar endurskoðunar í sambandi við tryggingalöggjöfina almennt.
Þetta embætti hefur þanist út og hefur haft allt of mikil og neikvæð afskipti af ýmsum viðkvæmum málum í okkar þjóðfélagi, ekki aðeins sjúklingum og þolendum til tjóns heldur einnig heilbrigðiskerfinu í heild. Ég tel þess vegna að það sé tímabært að taka þetta til alvarlegrar endurskoðunar og ég skora á hæstv. heilbrmrh. að fylgja þessu máli eftir og taka þetta til rækilegrar skoðunar í sambandi við þau áform sem uppi eru um að endurskoða tryggingalöggjöfina í heild.
Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þetta, herra forseti, ég vildi nota tækifærið til þess að láta þessa skoðun mína hér í ljós í sambandi við þær umræður sem hér hafa farið fram.