24.11.1987
Neðri deild: 14. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1179 í B-deild Alþingistíðinda. (786)
53. mál, umboðsmaður barna
Flm. (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Ég vil nýta þann litla tíma sem ég á eftir í þessari umræðu til að þakka þeim hv. þm. sem hafa tekið þátt í umræðum um frv. og eins og ég hef áður sagt erum við flm. vitaskuld opin fyrir því að það taki einhverjum breytingum í meðferð nefndar.
Vegna ræðu síðasta hv. ræðumanns vil ég einungis benda á að allir stjórnmálaflokkar hafa ár eftir ár samið góða stefnumótun í málefnum fjölskyldunnar, bæði minn flokkur og aðrir, og ég efast ekki um góðan vilja núv. ríkisstjórnar til að efla málefni fjölskyldunnar. Það er hins vegar dálítið erfitt, þegar litið er yfir frv. til fjárlaga, að sjá hvað stendur til að gera í þeim efnum. Ekki stendur til að efla dagvistarstofnanir, ekki stendur til að hækka laun kennara, það á einungis að fela þeim aukið uppeldishlutverk, ekki á að bæta aðstöðu kennara til endurmenntunar né að sýnilegt sé að annað það eigi að gera sem megi verða til farsældar börnum landsins. En um þetta eigum við sjálfsagt eftir að eiga orðastað seinna.
Það sem ég held að hér skipti máli er að staða barna í þjóðfélaginu, rúmlega fjórðungs landsmanna, verði verulega styrkt. Til þess er frv. flutt að börnin fái talsmann sem, eins og segir í 6. gr. frv., hefur rétt til að gera athugasemdir við hvað eina sem brýtur í bága við hagsmuni barna í samfélaginu og, með leyfi forseta: „tekur sá réttur til skipulagsmála, dagvistar- og kennslumála, umhverfismála, umferðarmála, heilbrigðismála, menningarmála og hverra þeirra málefna sem varða uppvaxtarskilyrði barna.“
Mönnum verður tíðrætt, og eðlilega, um að verkefni barnaverndarnefnda og Barnaverndarráðs Íslands og hins nýja umboðsmanns kunni að skarast. Ég held að ef vel er á málum haldið ætti hinn nýi umboðsmaður einungis að vera þessu ráði og nefndum til styrktar. Við vitum öll að bæði barnaverndarnefndir og Barnaverndarráð Íslands fást svo til eingöngu við erfið einkamál sem þessum nýja umboðsmanni er ekki ætlað að sinna, heldur er honum ætlað að sinna málefnum barna almennt. Ég held að það sé alveg ljóst að sáralítill tími gefist fyrir bæði barnaverndarnefndir og Barnaverndarráð Íslands að sinna málefnum barna í samfélaginu almennt. Þess vegna held ég að þessir aðilar hljóti að fagna þeim nýja starfskrafti sem þarna yrði til.
Ég er alveg hjartanlega sammála hv. 3. þm. Reykv. um að æskilegt er að umboðsmaður starfi sjálfstætt og ég hef áður sagt það hér að ástæðan fyrir því að við komum honum fyrir í dómsmrn. var e.t.v. fyrst og fremst sparnaður. Ég væri fús til að leggja þann sparnað af og gefa umboðsmanni tækifæri til að hafa eigin skrifstofu með eigin starfsliði og starfa gjörsamlega sjálfstætt, en þarna var verið að koma í veg fyrir að menn gætu veifað því að verið væri að búa til nýtt bákn í samfélaginu. Það hlýtur einungis að gleðja okkur ef menn eru tilbúnir til að veita meira fé til þessa nýja embættis og gera það enn sjálfstæðara en hér er gert ráð fyrir.
En herra forseti. Ég er víst að taka of mikinn tíma miðað við það sem ég hef áður haft tækifæri til að segja hér og vil því ljúka ræðu minni með því að fara fram á að frv. þetta fari að lokinni umræðu til hv. allshn. eins og á sl. ári. Og ég treysti því að hv. þm. leggi vinnu í að skoða þetta frv. mjög vel og veita því brautargengi á hinu háa Alþingi á þessu þingi.