24.11.1987
Neðri deild: 14. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í B-deild Alþingistíðinda. (807)
84. mál, viðskiptabankar
Forseti (Óli Þ. Guðbjartsson):
Það hafa þegar verið gerðar ráðstafanir til að athuga hvort ráðherra gæti komið hingað til fundar og meðan þess er beðið að það liggi fyrir af eða á verður málinu frestað og umræðunni. En enda þótt langt sé liðið fram yfir venjulegan fundartíma tel ég að það sé rétt að við nýtum tímann a.m.k. til að halda áfram með dagskrána.