15.10.1987
Sameinað þing: 3. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 102 í B-deild Alþingistíðinda. (81)

Síðustu efnahagsákvarðanir ríkisstjórnarinnar

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Reykn. fyrir að hefja máls á þessu sem við erum að ræða hér núna. Það er ekki vanþörf á því að taka það til umræðu í upphafi þings.

Einhverja heitustu dagana í maí á þessu vori sátum við kvennalistakonur ásamt nokkrum núv. ráðherrum, sem er farið að fækka hér í þingsölum að vísu, og freistuðum þess að ná saman um myndun ríkisstjórnar. Það var fyrst og fremst þrjósku Kvennalistans að þakka eða kenna, eftir því hvernig litið er á málin, að umræðurnar snerust að langmestu leyti um afkomu heimilanna og þá vitanlega fyrst og síðast þeirra sem lægstu tekjurnar hafa. Það vantaði raunar ekki að öll virtumst við sammála um að engir gætu framfleytt sér á lægstu tekjum sem viðgangast í landinu. Við gátum hins vegar ekki sameinast um leiðir til þess að leiðrétta það ranglæti og þarf ekki að tíunda það frekar hvernig fór. Viðmælendur okkar beygðu sig fyrir 3000 ára gömlu lögmáli kenndu við Mesópótamíu og létu sem þeir mundu leiðrétta kjör lágtekjufólksins á annan veg og varanlegri en með því að lögbinda lágmarkstekjur við framfærslukostnað. Við höfum nú séð nokkur af úrræðum þeirra.

Síðustu aðgerðir, sem að margra dómi eru í raun og veru fyrsta alvarlega tilraun ríkisstjórnarinnar til þess að taka að einhverju marki á stjórnun efnahagsmála, eru að ýmsu leyti einkennilegar. Einkennilegast er e.t.v. hversu seint þær líta dagsins ljós og allar athafnir ráðherra í þessum málum nú síðustu daga koma fyrir sjónir eins og þeir hafi verið uppteknir af einhverju allt öðru en því sem hefur verið að gerast í kringum okkur og hver maður gat séð jafnvel þótt hann hafi ekki hagfræðimenntun. Það er engu líkara en að hagfræðingarnir á stjórnarheimilinu séu farnir að þvælast hver fyrir öðrum og villa hver öðrum sýn. Nógu margir eru þeir í stólum ráðherra og aðstoðarmanna.

Hvað voru menn að bjástra meðan þenslan í þjóðfélaginu blómstraði, ef nota má svo fallegt og jákvætt orð í þessu samhengi? Gat það farið fram hjá þeim að vextir voru að hækka, olíuverð var að hækka og allt benti til þess að við gætum ekki veðjað á enn eitt metaflaárið á næsta ári? Sáu þeir ekki kaupæðið og fjárfestinguna? Á maður að trúa því að efnahagsráðgjöf fari þannig fram að menn tali ekkert saman og fylgist varla með þangað til einn daginn að hagfræðingur bankar á dyr ráðherra og segir: „Nú er það svart, maður. Þið verðið að grípa í taumana.“

Auðvitað gengur þetta ekki þannig fyrir sig. Það eru nefnilega ekki hagfræðingarnir sem banka á dyr ráðherranna, heldur ráðherrarnir sem senda eftir forsendum og niðurstöðum, fyrst og fremst til Þjóðhagsstofnunar, þeirrar stofnunar sem upphaflega átti að vera hlutlaus stofnun sem hægt væri að treysta. Og henti niðurstöðurnar ekki ráðherrunum endursenda þeir plaggið og panta aðrar forsendur og aðrar niðurstöður. Þannig gekk þetta fyrir sig á haustdögum, en út á við leit það út eins og ráðherrarnir hefðu allt í einu hrokkið við og séð að hrunadansinn yrði að stöðva. Og vissulega voru það einhverjir sem hrukku við. Í óðagoti var fjárlagafrv. rifið upp og rótast í því hér og þar, en ótal endar látnir óhnýttir að því er virðist í því skyni að geta sýnt niðurstöðutölur í plús.

Vissulega þurfti að taka á þessu öllu, en það hlýtur að vera okkur alvarlegt umhugsunarefni að svona skuli vera staðið að málum. Það ætti að vera algjör óþarfi að beita blekkingum og styðja stefnuna með röngum forsendum.

Ég er ekki að draga úr því að það þurfti að bregðast við þenslunni og offjárfestingunni og það þurfti að rétta af ríkissjóðshallann. M.ö.o., það þurfti að stíga á bremsurnar eins og hæstv. fjmrh. hefur orðað það. Ég skil hins vegar ekki hvernig hæstv. ráðherrar geta leyft sér að styðja aðgerðir sínar með rökum á borð við þau að hagvöxtur verði í núlli á næsta ári. Hann verður vafalaust lægri en í ár og undanfarin ár, en það er ekki hægt að styðja það góðum rökum að hann verði hreint enginn.

Ég skil heldur ekki hvernig fjmrh. getur leyft sér að vanmeta svo þátt beinna skatta sem hann gerir í fjárlagafrv. þegar allt bendir til þess að hann verði miklum mun meiri, nema ætlunin sé að gera stórfelldar breytingar á skattalögunum. Ég skil heldur ekki hvernig hæstv. ráðherrar geta komist að þeirri niðurstöðu að brýnast alls sé að gera fólki erfiðara fyrir með að næra sig og á þá auðvitað við hinn illræmda matarskatt sem erfitt er að sjá að samrýmist jafnaðarhugsjóninni sem margir vilja kenna sig við. Þessi skattlagning virðist núv. ríkisstjórn einkar hugstæð og hún heldur sínu striki þrátt fyrir mótmæli og viðvaranir úr ýmsum áttum. Kvennalistinn mótmælti þessari skattlagningu harðlega þegar í upphafi stjórnartíðar þessarar ríkisstjórnar þegar um hana fréttist og við mótmælum enn.

Þegar fyrst heyrðist af áformum ríkisstjórnarinnar í þessum efnum sendum við kvennalistakonur ríkisstjórninni erindi og ég sé nú ástæðu til þess að rifja það upp og lesa það upp hér með leyfi hæstv. forseta. Það hljóðar svo:

„Kvennalistinn skorar á hina nýju ríkisstjórn að láta af áformum um 10% söluskatt á matvæli. Þegar hefur framkvæmd þessarar skattheimtu verið frestað til næstu mánaðamóta og vill Kvennalistinn benda nýjum valdhöfum á að nota þann tíma til að íhuga vandlega kosti og galla skattlagningar á matvæli. Það þarf ekki að fjölyrða um áhrif skattlagningar á matvæli fyrir heimili landsins, en hitt vefst fyrir mörgum hvernig þessi nýja skattlagning samræmist eftirfarandi markmiðum nýrrar ríkisstjórnar:

1. Lækkun verðbólgu.

2. Tekjuöflun ríkisins verði gerð einfaldari og réttlátari og skilvirkari, eins og stendur í starfsáætlun ríkisstjórnarinnar.

Varðandi fyrra atriðið, þá er vitað að hækkun framfærslukostnaðar hefur áhrif á rauðu strikin og er því verðbólguhvetjandi.

Varðandi síðara atriðið má spyrja um réttlæti þess að hækka verð á þeirri vöru sem enginn getur verið án. Smávægileg hækkun elli- og örorkulífeyris og barnabóta til örfárra bætir engan veginn upp þá hækkun brýnustu nauðsynja og auknu verðbólgu sem af þessari aðgerð leiðir. Einfaldari verður innheimtan varla ef þrefalt kerfi verður í gangi í einni og sömu verslun, 25%, 10% og 0% söluskattur.

Ef ríkisstjórnin heldur fast við áform sín mun hráefnið í grjónagrautinn hækka. Hvað skal þá til ráða? Hvaða mataruppskrift ætlar ný ríkisstjórn að ráðleggja húsmæðrum landsins?"

Aldrei svaraði hæstv. ríkisstjórn þessu hófsamlega bréfi með beinum hætti, en óbeint hefur hún svarað og er ástæða til að ítreka fyrirspurn okkar um hvaða mataruppskrift ríkisstjórnin ætlar að ráðleggja fólki og fer nú að sneiðast um vænlega kosti.

Um hinar tvær meginleiðirnar til tekjuauka fyrir ríkissjóð, sem nýlega hafa verið boðaðar og raunar komið til framkvæmda nú þegar, er það að segja að ósárt er okkur um hækkun áfengis og tóbaks og sama má eiginlega segja um hækkun innflutningsgjalda á bifreiðum. Með síðari liðnum er jafnframt gerð tilraun til að stöðva bílastrauminn til landsins og er út af fyrir sig góðra gjalda vert en spurning hvort slík aðgerð er ekki of seint á ferðum. Skaðinn er skeður og hefur þegar kallað á umferðaröngþveiti og óhemjudýrar lausnir. Auk þess er alltaf vont að hringla fram og aftur með einstaka þætti í verðmyndun eins og hér er gert og ekki beint til þess fallið að auka tiltrú almennings á ráðstöfunum stjórnvalda.

Um aðgerðir ríkisstjórnarinnar í peningamálum er það að segja að allar miða þær að því að auka sparnað, draga úr fjárfestingu fyrirtækja og draga úr neyslumöguleikum fólks. Purkunarlaust er stefnt að hækkun vaxta sem af mörgum er talin vænleg leið til að leita jafnvægis. Aðrir draga það í efa og reynslan sannar engan veginn að slík verði niðurstaðan. Það fer þó vitanlega að miklu leyti eftir nánari útfærslu og framkvæmd. E.t.v. hefur einna mest áhrif yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um að gjald á erlendar lántökur verði fellt niður við lok næsta árs. Nú er spurning hins vegar hvort þessi frestur er nægilega langur og hvort slík yfirlýsing þýði hugsanlega sprengingu þegar þar að kemur. En þá verður hagfræðingagengið líklega búið að finna upp ný ráð.

Það er ýmislegt annað sem vekur efasemdir um árangur. Gefin eru fyrirheit um gengisbundna reikninga, eins og hér hefur verið nokkuð til umræðu, skuldabréf, skírteini og víxla. Líklega eru þar töfraorðin „opið og frjálst“ en það er ekki á hvers manns færi að spá um árangur. Reyndar heyrðist mér hæstv. fjmrh. ekki hafa trú á því að þetta breytti miklu í náinni framtíð og ólíklegt, eins og hann ýjaði að áðan, að þessir kostir freisti umfram aðra, sem stendur a.m.k. Margt annað í þessum ráðstöfunum er torskilið og óútskýrt. Ég nefni bara eitt dæmi hérna. Sala og dreifing spariskírteina og ríkisvíxla verður endurbætt. Punktur. Og engar frekari skýringar. Ég hef ekki heyrt þær. Það má vel vera að þær hafi einhvers staðar komið fram. Ég átta mig ekki á því hverju þetta á að skila. Kannski menn ætli í smiðju til íþróttafélaganna sem hafa reynst nösk á leiðir til fjáröflunar eins og nýjustu fréttir úr Tímanum sanna. En við skulum sleppa öllum flimtingum.

Það gat ekki farið fram hjá nokkrum manni að þenslan í efnahags- og atvinnumálum okkar hefur verið gífurleg og ört vaxandi allt þetta ár og var löngu komin á hættulegt stig. Þar kemur vitanlega margt til, bæði ytri aðstæður og skilyrði vegna aðgerða stjórnvalda í ríkisfjármálum og peningamálum. Þeir sem ráða ferðinni í efnahags- og atvinnumálum okkar hafa sýnt ábyrgðarleysi og magnað upp verðbólguókindina með gegndarlausum innflutningi og offjárfestingu og margfaldað launabilið í landinu, sem þó átti að vera háð lögmálinu frá Mesópótamíu, með þvílíku launaskriði að meðaltalskaupmáttur hefur ekki verið hærri lengi og vitaskuld einblína menn á meðaltölin eins og fyrri daginn.

Ríkisstjórnin og ráðherrar hennar beina ákveðnum tilmælum til launafólks um hófsemd í kaupkröfum. Það gera þeir í öðru orðinu og í hinu orðinu hækka þeir framfærslukostnaðinn með siðlausum aðgerðum á borð við matarskattinn. Er þetta nú vænlegt til árangurs? Var ekki nær að afla tekna þar sem peningarnir eru mestir fyrir? Var ekki nær að skattleggja vaxtatekjur, hækka eignarskatt, skattleggja hæstu tekjur og sækja fé til fyrirtækja, einkum í verslun og viðskiptum, sem greiða óeðlilega lítið til samfélagsins. Hvað er orðið af áhuga Alþfl. á því að ná inn í ríkissjóð einhverju af þeim fjórum til sex, eða hvað það nú er, milljörðum króna sem allir eru sammála um að skotið er fram hjá skatti og stýrt beint inn í einkaneysluna? Við kvennalistakonur viljum gjarnan styðja ykkur í slíkum málum. En við mótmælum enn og aftur siðlausri skattlagningu á brýnustu nauðsynjar sem er vitaskuld í hróplegu ósamræmi við hræsnisfullar yfirlýsingar hæstv. ríkisstjórnar og ráðherra um umhyggju þeirra fyrir hinum tekjulægstu. Þeir kveinka sér þó ekki við því að halda því öðru hverju fram þar sem þeir telja það viðeigandi.

Neðst á bls. 4 í þjóðhagsáætlun stendur t.d. þessi fallega setning: „Ríkisstjórnin telur þó mikilvægt að áhersla verði lögð á að bæta kjör þeirra sem hafa lægst laun.“

Þetta var nú reyndar orðsending til aðila vinnumarkaðarins.

Á hinni síðunni er boðskapur ríkisstjórnarinnar um það hvernig hún telur rétt að bæta kjör þeirra sem hafa lægstu launin. „Frá 1. nóv. falla niður söluskattsundanþágur á matvælum.“ Er þetta ekki eitthvað öfugsnúin jafnaðarstefna, hæstv. ráðherrar úr röðum Alþfl.?