25.11.1987
Neðri deild: 15. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1266 í B-deild Alþingistíðinda. (862)

129. mál, kirkjugarðar

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Ég þakka forseta fyrir að hafa tekið tillit til þess sem ég tel greiða fyrir eðlilegu starfi þingnefnda, að gefa kost á að mæla fyrir þessum frv., annars vegar um sóknargjöld og hins vegar um kirkjugarðsgjöld, á einum og sama fundinum, þannig að nefndin geti fengið þau bæði til meðferðar í einu lagi.

Frv. sem hér liggur fyrir um breytingu á lögum um kirkjugarða er flutt af sömu ástæðu og frv. til laga um sóknargjöld sem ég gerði grein fyrir fyrr á þessum fundi, þ.e. vegna gildistöku laga um einföldun á staðgreiðslu opinberra gjalda frá næstu áramótum er nauðsynlegt að gera breytingar á tekjustofnum kirkjugarðanna. Sama nefndin og samdi frv. sem ég fyrr nefndi hefur samið frv. til laga um kirkjugarðsgjöldin. Frv. sem hér liggur fyrir var kynnt á kirkjuþingi sem gerði á því óverulega breytingu og ég flyt það í þeirri gerð sem kirkjuþing gekk frá því.

Samkvæmt gildandi lögum eru kirkjugarðsgjöldin lögð á sem tiltekinn hundraðshluti af útsvarsfjárhæð og aðstöðugjöldum. Þessi hundraðshluti er nú 1,5% ef venjulega er á lagt en þó allt að 4% með sérstakri heimild til hækkunar. En staðgreiðsla opinberra gjalda mun eingöngu taka til útsvars en ekki til aðstöðugjalda.

Í frv. er því gert ráð fyrir að ákvæði laga um kirkjugarðsgjöld, sem nú eru reiknuð af aðstöðugjöldum, haldist óbreytt. Hins vegar er með frv. gerð sú tillaga, og það er meginefni frv., að sá hluti kirkjugarðsgjaldsins, sem nú reiknast af útsvari, verði framvegis hluti af hinum sameinaða tekjuskatti eins og hann verður þegar staðgreiðslukerfið hefur tekið gildi. Samtals nemur þessi hluti kirkjugarðsgjaldsins á árinu 1987 145,6 millj. kr. ef eingöngu er miðað við 1,5% álagningu.

Í áætlunum frv. hefur verið bætt við þessa fjárhæð 1,5%. Þeirri viðbót er ætlað að koma að nokkru á móti þeim tekjumöguleikum sem stjórnir kirkjugarðanna hafa hingað til haft samkvæmt gildandi lögum til að hækka gjaldið. Sú heimild fellur hins vegar úr gildi verði frv. að lögum.

Við útreikning á kirkjugarðsgjaldinu samkvæmt þessari nýju aðferð er því miðað við töluna 147,8 millj. kr. fyrir landið allt. Þá er deilt í þá fjárhæð með þeim fjölda manna sem eru 16 ára og eldri og þannig fundin ákveðin grunntala eða nefgjald sem framvegis verður notuð til þess að ákveða hlutdeild kirkjugarðanna í tekjuskattinum.

Þá er gert ráð fyrir að þetta nefgjald fylgi þeim breytingum sem verða kunna á meðtalstekjuskattsstofni einstaklinga tvö síðustu árin á undan gj aldári. Öll önnur framkvæmd, álagning og úthlutun þessa fjár, mun fara eftir sömu vinnuaðferð og varðandi sóknargjöldin sem ég lýsti áður.

Samkvæmt gildandi lögum ber nú að greiða til kirkjugarðasjóðs 5% af álögðum kirkjugarðsgjöldum. Samkvæmt frv. er gert ráð fyrir að hækka þetta framlag í 8%. Það er megintilgangur þessa sjóðs að jafna aðstöðuna milli kirkjugarðssvæða og veita þar aðstoð sem tekjur kirkjugarðsins sjálfs hrökkva ekki fyrir nauðsynlegustu útgjöldum. Með auknu framlagi til sjóðsins ætti hann að vera betur í stakk búinn að gegna þessu hlutverki.

Í frv. er einnig breytt ákvæðum um stjórn sjóðsins. Samkvæmt gildandi lögum fer skipulagsnefnd kirkjugarða með stjórn hans, en í frv. er gerð sú tillaga að kirkjuráð kjósi þriggja manna stjórn fyrir kirkjugarðsjöfnunarsjóðnum. Þá eru í frv. fáein nýmæli um hlutverk sjóðsins. Þessar breytingar varðandi kirkjugarðasjóðinn eru að öllum aðalatriðum til samhljóða tillögum er kirkjuþing samþykkti á árinu 1986. Um nánari útlistun á þessum breytingum, sem allar eru smávægilegar og horfa til almennrar skynsemi og bættrar framkvæmdar í þessu starfi, vísa ég til prentaðrar grg. með frv.

Áð endingu, herra forseti, legg ég áherslu á að frv. hljóti skjóta meðferð á þinginu, enda tengist það eins og ég nefndi í upphafi, gildistöku staðgreiðslu skatta í byrjun næsta árs. Ég legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. menntmn.