26.11.1987
Sameinað þing: 22. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1281 í B-deild Alþingistíðinda. (879)

62. mál, ráðning í stöðu þjóðgarðsvarðar

Fyrirspyrjandi (Kristín Halldórsdóttir):

Herra forseti. Atvik hafa hagað því svo að þessi umræða er miklu seinna á ferðinni en ég hefði viljað og eðlilegt hefði verið. Ég óskaði eftir umræðum utan dagskrár um þetta mál skömmu eftir að það kom upp og vildi fá það rætt í vikunni fyrir þing Náttúruverndarráðs, eins og eðlilegt hefði verið, þ.e. áður en hæstv. ráðherra skipaði formann og varaformann Náttúruverndarráðs fyrir næsta tímabil. Því miður var kvótinn fyrir utandagskrárumræður uppurinn þá viku og allt frá þeim tíma hefur hæstv. menntmrh. verið fjarri í fyrirspurnatímum. Það hefur því dregist langt um of að fá svar við þeim spurningum sem fram koma á þskj. 64.

En þótt langt sé um liðið og e.t.v. farið að fyrnast yfir málið í hugum margra er ekki ástæða til að láta kyrrt liggja því að hér er um að ræða spurningar um grundvallaratriði og vinnubrögð og þetta tiltekna mál er stefnumarkandi og fordæmisgefandi þar sem hér er um að ræða fyrstu ráðningu Náttúruverndarráðs í stöðu þjóðgarðsvarðar.

Forsaga þess er í örfáum orðum sú að í ágúst sl. auglýsti Náttúruverndarráð stöðu þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli lausa til umsóknar. Um stöðuna sóttu sex manns, þar af þrír með mikla reynslu af landvörslu og náttúruverndarstarfi. Tveir umsækjenda eru með líffræðimenntun og annar þeirra reyndar með háskólagráðu í umhverfisfræðum auk þess að hafa kynnt sér sérstaklega skipulag þjóðgarða víða erlendis. Einn umsækjandi er með lögfræðimenntun og sérmenntun í umhverfisrétti og hefur skrifað mikið rit um Skaftafell.

Þegar gengið var frá ráðningu Náttúruverndarráðs í stöðuna fyrir rúmum mánuði urðu nokkur blaðaskrif um málið og fram komu mótmæli m.a. frá stjórn Landvarðafélagsins þar sem með þessari ráðningu þótti freklega gengið fram hjá faglegri menntun og starfsreynslu. Því spyr ég hæstv. menntmrh. á þskj. 64 að því hvort hæstv. ráðherra hafi kynnt sér þau vinnubrögð sem viðhöfð voru við ráðningu í stöðu þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli og hvort hann geti upplýst um hvaða forsendur voru lagðar til grundvallar þeirri ráðningu og til hve langs tíma ráðningin er og enn fremur hvort ráðherra sé samþykkur því mati Náttúruverndarráðs sem lýsir sér í vali þess úr hópi sex umsækjenda um stöðuna.