26.11.1987
Sameinað þing: 22. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1288 í B-deild Alþingistíðinda. (886)
67. mál, verðtrygging
Fyrirspyrjandi (Kristín Halldórsdóttir):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svör hans þó að ég hefði e.t.v. vonast eftir jákvæðari viðbrögðum. Það eru mér nokkur vonbrigði að það skuti ekki vera nein ákveðin áform um að taka á þessu máli sérstaklega. Málið er einfaldlega þannig vaxið að hinn almenni lántakandi vill geta skilið og vill sjá réttlætið í því þegar lánið, sem hann tók til að standa undir húsnæðiskaupum eða annarri langtímafjárfestingu og hafði áætlað út í hörgul hvernig hann mundi greiða það lán, fer svo allt í einu að vaxa í höndunum á honum og verður e.t.v. þungbærara en áður miðað við þau laun sem hann fær. Þetta er einfaldlega málið og þarf ekki að minna á títtnefnd dæmi um það þegar verðgildi húsnæðislánanna hækkar við það að kaffið hækkar í Brasilíu eða að stjórnvöld telja sig þurfa að græða svolítið á áfengisneyslu landsmanna.
Menn vísa til verðbólgunnar, eins og hæstv. ráðherra gerði áðan, og kenna henni gjarnan um alla hluti, en að mínu viti er þetta einn af þeim þáttum sem kynda undir verðbólgu, þ.e. öryggisleysi manna í sambandi við lántökur. Þeir geta ekki treyst því að aðstæður breytist ekki ár frá ári, jafnvel frá einum mánuði til annars. Við vitum t.d. að fæstir þeirra sem lentu í erfiðleikum, jafnvel gjaldþrotum á síðustu árum vegna húsnæðiskaupa höfðu reist sér hurðarásinn fræga um öxl af eigin asnaskap. Þeir höfðu sannarlega gert sínar áætlanir um endurgreiðslur, en þær stóðust ekki vegna aðgerða ríkisstjórnar og inngripa í þróun launa og lánskjara.
Hæstv. ráðherra minnti á hver þróun þessara viðmiðunarvísitalna hefur verið á undanförnum árum og hefur þar gengið í ýmsum skrykkjum. Ég hef tölur yfir hver hækkun þessara vísitalna hefur verið í prósentum talið frá því í maí 1983 þegar efnahagsaðgerðir þáv. ríkisstjórnar komu til framkvæmda. Þróunin er sú að framfærsluvísitalan hefur hækkað um 285%, byggingarvísitalan um 257%, lánskjaravísitalan um 297% og launavísitalan 298%.
Að lokum, herra forseti, fordæmin hræða og þess vegna verðum við öll að halda vöku okkar. Þessi mál verða að mínum dómi að vera í sífelldri endurskoðun.