26.11.1987
Sameinað þing: 22. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1292 í B-deild Alþingistíðinda. (893)
102. mál, jöfnun á námskostnaði
Fyrirspyrjandi (Sturla Böðvarsson):
Hæstv. forseti. Á þskj. 106 ber ég fram fsp. í tveimur liðum til hæstv. menntmrh. um framkvæmd laga nr. 62 frá 1972, um ráðstafanir til jöfnunar á námskostnaði.
Það er mat margra að ein af ástæðum fyrir óæskilegri byggðaþróun í landinu sé mikill aðstöðu munur ungmenna til að sækja framhaldsnám. Þessi munur er í senn félagslegur og fjárhagslegur og hefur valdið því að heilu fjölskyldurnar hafa valið þann kost nauðugar að fylgja námsmönnum til höfuðborgarinnar vegna þess mikla kostnaðar sem því er samfara að búa fjarri heimili. Til þess að draga úr þessum mun voru sett lög um ráðstafanir til jöfnunar á námskostnaði. Þegar frv. að þeim lögum var til umræðu í þinginu sagði þáv. menntmrh. í framsögu fyrir frv., með leyfi forseta:
„Í 1. gr. frv. er því lýst yfir að ríkið veiti námsstyrki til jöfnunar á fjárhagslegum aðstöðumun nemenda í framhaldsskólum að því leyti sem búseta veldur þeim misþungum fjárhagsbyrðum.“
Og síðar segir ráðherrann: „Markmið þessa lagafrv., sem hér er lagt fram, er að ná sem fyllstum jöfnuði, að jafna þann aðstöðumun til náms sem búsetan að öðrum kosti skapar.“
Við þessa umræðu tók einnig til máls hv. þm. Pálmi Jónsson og sagði m.a., með leyfi forseta: „Frv. það, sem nú er til umræðu, er flutt með það markmið fyrir augum að ná fram jafnrétti á milli þeirra nemenda sem búa í strjálbýli og þeirra sem í þéttbýli búa að því er námsaðstöðu snertir. Þetta var og mjög ítarlega fram tekið í ræðu hæstv. menntmrh. nú áðan. Ég vil lýsa því yfir að ég tel að þetta frv. sé þýðingarmikið og eðlilegt skref.“
Síðar segir þm., með leyfi forseta: „Jöfn menntunaraðstaða er eitt hið mesta réttlætismál og hagsmunamál byggðarinnar í landinu því að aðstaða til menntunar hefur einnig sitt hagræna gildi, það gildi að ef menn hafa ekki aðstöðu til þess að hljóta sambærilega menntun á einum stað sem annars staðar, þá mun búsetan raskast.“
Það sem hér hefur verið vitnað til er allt í fullu gildi enn. Ég tel nauðsynlegt að vitna til umræðna frá því að lögin voru sett til þess að meta hvort tilgangi laganna hafi verið náð. Námsmenn og foreldrar þeirra sem þurfa að sækja nám fjarri heimilum hafa kvartað mjög undan kostnaði við námið og að námsstyrkur hafi rýrnað á undangengnum árum. Því er svohljóðandi fsp. borin fram til hæstv. menntmrh.:
„1. Hversu hár var námsstyrkur til hvers nemanda árin 1975–1987? Styrkfjárhæðir verði færðar til verðlags í nóvember 1987 með vísitölu framfærslukostnaðar.
2. Hver verður styrkurinn árið 1988?"