26.11.1987
Sameinað þing: 22. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1300 í B-deild Alþingistíðinda. (901)
112. mál, samfélagsþjónusta sem úrræði í viðurlagakerfinu
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Fsp. sem til mín er beint er í tveimur liðum. Í fyrsta lagi er spurt hvort skipuð hafi verið nefnd til að kanna hvort endurgjaldslaus vinnuþjónusta í þágu samfélagsins geti við ákveðnar aðstæður komið í stað afplánunar dóma. Í öðru lagi er spurt hvað líði störfum nefndarinnar.
Svarið við fyrri spurningunni er já. Ég skipaði í þessari viku slíka nefnd. Í skipunarbréfi hennar er m.a. vísað til þál. frá 5. mars 1987, um samfélagsþjónustu sem úrræði í viðurlagakerfinu, sem hv. fsp. vísaði til. Ég hef falið nefndinni að kanna hvort endurgjaldslaus vinnuþjónusta í þágu samfélagsins geti við ákveðnar aðstæður komið í stað afplánunar dóma í fangelsi. Í nefndinni eiga sæti Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri, sem er formaður hennar, Ragnheiður Bragadóttir aðjúnkt, Jóna Gróa Sigurðardóttir borgarfulltrúi, Margrét Heinreksdóttir fulltrúi, Kristján Guðmundsson bæjarstjóri og Þorsteinn A. Jónsson deildarstjóri sem verður ritari nefndarinnar.
Í öðru lagi spurði hv. fyrirspyrjandi hvað liði störfum nefndarinnar, en af eðlilegum ástæðum ætla ég fátt um það að segja. Það er of snemmt að segja til um hvenær hún kunni að ljúka störfum. Ég treysti því hins vegar að nefndin muni vinna rösklega að sínu verkefni. Í þessu efni er áreiðanlega gagnlegt að kynnast og kynna okkur reynslu Dana, Norðmanna og Breta, en allar þessar þjóðir hafa í nokkrum mæli beitt slíkum viðurlögum. Reyndar er það í Noregi, að því er ég hef spurt, í tilraunaskyni. En það er líka rétt að kynnast viðhorfum annarra nágrannaþjóða eins og t.d. Svía sem ekki hafa beitt samfélagsþjónustu sem refsiviðurlögum og hafa virst mjög hikandi við að taka hana upp.
En það sem mestu máli skiptir er að það hlýtur að verða hlutverk þessarar nefndar að gera grein fyrir þeim aðstæðum hér á landi sem kynnu að mæla með og þeim sem kynnu að mæla gegn því að við tækjum upp þetta nýmæli sem viðurlög í stað afplánunar fangelsisdóma.