26.11.1987
Sameinað þing: 22. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1306 í B-deild Alþingistíðinda. (907)
118. mál, veiting útflutningsleyfa á frystum sjávarafurðum til Bandaríkjanna
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Þessi fsp. gefur mér kærkomið tækifæri til að skýra ástæðurnar fyrir því að ég hef ákveðið að auka nokkuð frjálsræði til útflutnings á freðfiski til Bandaríkjanna. Ég vísa ásökunum fyrirspyrjandans um ókurteisi við utanrrh. eða ódrengilega framkomu við hann eða aðra samráðherra mína til föðurhúsanna. Það hvorki var né verður ætlunin að viðskrn. væri algerlega aðgerðalaust þar til málefni utanríkisviðskipta hafa verið flutt með lögum frá því, enda væri slíkt óviðunandi með öllu. Utanrrh. fylgdist með málinu frá því síðsumars og leyfisveitingarnar komu hvorki honum né forsrh. á óvart. Ég vona bara svo sannarlega að utanrrh. beri gæfu til að halda vesturgluggunum opnum.
Það er reyndar rétt, eins og kom fram hjá hv. fyrirspyrjanda, að um langt árabil var sú regla í gildi að aðeins tveir aðilar, þ.e. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Samband ísl. samvinnufélaga, fengu leyfi til að flytja út frystan fisk til Bandaríkjanna. Þetta var væntanlega í upphafi ákveðið til að gefa þessum aðilum tækifæri á því að byggja upp dreifingar- og vinnsluaðstöðu á markaðnum án þess að þeir lentu í harðri samkeppni við aðra íslenska útflytjendur á meðan. Fyrirtækin hafa fyrir löngu komið ár sinni vel fyrir borð í Bandaríkjunum og þau hafa nú yfirburðaaðstöðu þar vestra fram yfir nýja útflytjendur frystra sjávarafurða á þennan mikilvæga markað.
Stjórnendur þeirra vilja auðvitað að fyrirtækin verði áfram ein um hituna og þeir berjast af fullri hörku gegn því að fleiri aðilum verði veitt heimild til að flytja út frystar sjávarafurðir til þessa lands. Engu að síður hefur tveimur öðrum aðilum á undanförnum árum verið veitt heimild til útflutnings á frystum fiski til Bandaríkjanna. Þar er annars vegar um að ræða Íslensku umboðssöluna hf., sem hefur haft slíka leyfi í maí á þessu ári.
Fljótlega eftir að ég tók við starfi viðskrh. bárust þrjár nýjar umsóknir um sams konar heimild. Ég taldi rétt að taka þær til efnislegrar úrlausnar og með tilvísun til þeirrar meginreglu í opinberri stjórnsýslu að jafnræði skuli ríkja með þegnunum gat ég ekki fundið nein rök sem leiða mundu til synjunar á þessum umsóknum. Ég gat ekki betur séð en fyrirtækin þrjú hefðu allar sömu forsendur til sölu frystra sjávarafurða á Bandaríkjamarkað og Íslenska umboðssalan hf. og Kirkjutorg hf. (Gripið fram í.) Ég bið hv. fyrirspyrjanda að geyma orð sín til þess að hann hefur tíma í ræðustól.
Ekkert þessara fyrirtækja, sem um leyfin sóttu, þurfti reyndar að byggja upp sölukerfi í Bandaríkjunum frá grunni þar sem þau fluttu þangað þegar ferskan fisk og aðrar afurðir, þar á meðal rækju, humar og hörpudisk. Synjun umsóknanna hefði því falið í sér geðþóttamismunun. Reyndar tel ég orka tvímælis að binda eigi leyfi til útflutnings yfirleitt slíkum skilyrðum.
Ég tel reyndar líka að hin stóru sölusamtök, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og SÍS, geti ekki litið á einkasöluaðstöðu sína í Bandaríkjunum sem eitthvert náttúrulögmál. Þau hafa lengi notið forréttinda varðandi útflutning á frystum fiski þangað og ættu að hafa komið sér nægilega vel þar fyrir til að standast samkeppni við nýja útflytjendur héðan án þess að njóta sérstakrar ríkisverndar. Ef það er ekki, þá er eitthvað athugavert við reksturinn.
Þá er það staðreynd að Bandaríkjamarkaður er svo stór að sölusamtökin tvenn munu aldrei geta sinnt öllum þörfum hans né leitað þar uppi öll hagkvæm tækifæri til viðskipta, ekki síst hvað varðar sérunna framleiðslu. Þróun síðustu ára með vaxandi eftirspurn eftir fiski og breyttri samgöngu- og samskiptatækni gefur einnig smáum söluaðilum tækifæri til að sinna ýmsum sérþörfum á markaðnum betur en stóru sölusamtökin geta. Í þessu sambandi verða menn einnig að hafa í huga að nær ógerlegt er að koma í veg fyrir sölu frystra sjávarafurða frá Íslandi á Bandaríkjamarkað eftir krókaleiðum sem m.a. gætu legið í gegnum milliliði á meginlandi Evrópu og hefur reyndar átt sér stað.
Ég ritaði því hinn 11. september sl. utanrrh. og sjútvrh. minnisblað, sem einnig var sent forsrh., þar sem ég skýrði frá umsóknum fyrirtækjanna þriggja sem öll eru vel virt á sínu sviði, en það eru fyrirtækin
Íslenskur gæðafiskur hf. í Njarðvík, Vogar hf. í Vogum og Marbakki hf. í Kópavogi. Ég gerði þar grein fyrir skoðunum mínum á málinu og sagðist hafa í hyggju að veita fyrirtækjunum tilgreinda útflutningsheimild á frystum sjávarvörum til Bandaríkjanna og yrði gengið úr skugga um það í hvert skipti sem leyfi yrði veitt að verð væri sambærilegt við það sem gerðist hjá öðrum útflytjendum á þennan markað. Ég rifjaði líka upp að þetta væri í samræmi við stefnu stjórnarinnar um frjálsræði í viðskiptum, jafnt út á við sem inn á við.
5. nóvember sl. ritaði ég svo annað minnisblað til sömu ráðherra þar sem ég skýrði frá þremur umsóknum til viðbótar um útflutningsleyfi til Bandaríkjanna á frystum fiski. Þau voru frá fyrirtækjunum Stefni hf. í Reykjavík, Íslensku útflutningsmiðstöðinni hf. í Reykjavík og G. Ingasyni hf. á Seltjarnarnesi. Ég greindi þeim frá því að ég teldi mér ekki annað fært en að veita þessum fyrirtækjum einnig útflutningsleyfi, en allar heimildirnar yrðu takmarkaðar við sex mánaða tímabil í senn, m.a. með tilliti til þess að stjórnarfarslegt forræði útflutningsmála kynni bráðlega að flytjast til annars ráðuneytis.
Þá taldi ég æskilegt að á næstunni yrði stofnað til fundar með öllum þeim sem áhuga hefðu á freðfiskútflutningi til Bandaríkjanna til að ræða framtíðarskipan þessara mála af opinberri hálfu.
Með leyfi hæstv. forseta vil ég fá að ljúka máli mínu með örfáum orðum. Málið var rætt innan ríkisstjórnarinnar og voru um það skiptar skoðanir, eins og reyndar hefur komið fram, en ég taldi mig ekki geta staðið að því að mismuna útflytjendum með því að neita sumum um sams konar leyfi og aðrir höfðu fengið hjá fyrirrennurum mínum og ég sá ekki þá að það vekti upp stóryrt mótmæli. Ég veitti því leyfin og vil taka það skýrt fram að um málið hefur verið fjallað af fyllstu tillitssemi við hæstv. utanrrh. og sjútvrh. og að forsrh. var einnig kunnugt um málið.
Leyfisveitingin hefur síðan orðið tilefni ýmissa ómaklegra og óviturlegra ummæla. Málið snýst um frelsi eða einokun. Það snýst um jafnræði fyrirtækjanna eða séraðstöðu hinna útvöldu. Valið þar á milli var og verður mér mjög auðvelt. Ég vil í stuttu máli rifja upp mín rök fyrir þeim leyfisveitingum sem hér eru gerðar að fyrirspurnarefni.
1. Það er skoðun mín að jafnræði fyrirtækja eigi að koma í staðinn fyrir einkaaðstöðu útvaldra.
2. Bandaríkjamarkaður er miklu stærri en svo að fá fyrirtæki geti þar fundið og hagnýtt öll hentug tækifæri sem bjóðast.
3. Það er hvort eð er ógerningur að koma í veg fyrir útflutning á frystum sjávarvörum frá Íslandi á Bandaríkjamarkað ef milliliðir í öðrum ríkjum koma þar við sögu.
4. Ég tel að sölusamtökin tvenn hafi þegar fengið nægan tíma til að byggja upp öfluga aðstöðu í Bandaríkjunum og að lokum vil ég minna hv. fyrirspyrjanda á að einokun í viðskiptum hlýtur ávallt að vera undantekning en ekki jafngildi náttúrulögmáls.
Hv. fyrirspyrjandi spyr einnig með hvaða hætti ég hyggist tryggja að óskipulagður útflutningur, eins og hann kallar það, á frystum sjávarvörum inn á Bandaríkjamarkað skaði þar ekki gott álit neytenda og áreiðanleika í viðskiptum við Íslendinga með frystar sjávarafurðir með sérstöku tilliti til gæða. Fyrst vil ég segja að ég tel það misskilning af hálfu fyrirspyrjanda að það sé hlutverk ríkisins að tryggja gæðin, að tryggja þetta sem hann nefnir. Það er ekki þeirra hlutverk sem með ríkisstjórnina fara. Það er fyrirtækjanna og samtaka þeirra. Ég tel ástæðulaust að ætla að þeir útflytjendur sem hér um ræðir muni ekki uppfylla öll þau skilyrði sem gerð eru um gæði vöru á Bandaríkjamarkaði. Þessi fyrirtæki hafa stundað útflutning á vörutegundum sem eru afskaplega vandmeðfarnar, kannski næmari fyrir gerlum en fryst flök. Ég nefni hörpudisk, humar og rækju, auk þess sem flest þeirra eða öll hafa fengið að flytja það sem viðkvæmast er af öllum fiskvörum, nefnilega ferskan fisk, með flugvélum til Bandaríkjanna. Jafnframt hlýt ég að treysta því að vel hæfir starfsmenn Ríkismats sjávarafurða og verkstjórarnir í frystihúsunum, sem margir eru menntaðir úr Fiskvinnsluskólanum í Hafnarfirði, og þrautþjálfað starfsfólk í frystihúsum muni sjá til þess að útflutningsvaran sem hér um ræðir muni hér eftir sem hingað til bera íslenskri framleiðslu góðan vitnisburð á erlendum vettvangi. Að gefa annað í skyn, eins og gert er í fsp., er bæði ómaklegt og órökstutt.