15.10.1987
Sameinað þing: 3. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 133 í B-deild Alþingistíðinda. (91)

Síðustu efnahagsákvarðanir ríkisstjórnarinnar

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Í framhaldi af orðum hv. 3. þm. Norðurl. e. Árna Gunnarssonar langar mig til að ítreka það við forseta að hér stendur yfir utandagskrárumræða sem hefur staðið á fimmtu klukkustund. Málshefjandi þessarar umræðu hefur ekki sýnt þinginu þann sóma að sýna sig í þingsölum í kvöld. Ég vil lýsa því sem skoðun minni að ég sé ekki nokkra ástæðu til að halda þessari umræðu áfram þegar sá sem hana hóf hefur ekki meiri áhuga á málinu en svo að hann heldur sig víðs fjarri þingsölum. Ég beini því til hæstv. forseta að hann athugi um að þeir þm. sem þegar hafa skráð sig á mælendaskrá íhugi að falla frá orðinu þannig að þessari umræðu geti þá lokið með viðlíka reisn og hún hófst.