26.11.1987
Sameinað þing: 23. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (915)

115. mál, úrelding bifreiða

Flm. (Guðmundur H. Garðarsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir till. til þál. um skilatryggingu vegna úreldingar bifreiða.

Meðflm. mínir eru hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir, 6. þm. Reykv., og Jóhann Einvarðsson, 8. þm. Reykn. Till. hljóðar sem hér segir:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa frumvarp til laga um skilatryggingu vegna úreldingar bifreiða.“

Á síðustu árum hefur bifreiðum fjölgað mikið hér á landi og er fyrirsjáanlegt að á næstu árum muni tugir þúsunda bifreiða úreldast. Það er áætlað að árlegur fjöldi þessara bifreiða verði 10–20 þúsund. Nú þegar er það orðið alvarlegt vandamál víða um land að koma þessum bifreiðahræjum fyrir. Víða má sjá þessar ónýtu bifreiðar þar sem þær liggja í algjöru hirðuleysi öllum til ógagns og skapa auk þess ákveðnar hættur fyrir börn og unglinga, svo að ekki sé talað um náttúruspjöll. Er brýnt að nú þegar verði gripið til nauðsynlegra ráðstafana til að fyrirbyggja frekari neikvæða þróun í þessum efnum og skylda bifreiðaeigendur til þess að gera viðeigandi ráðstafanir við að koma gömlum og ónýtum bifreiðum til úreldingar.

Það er eðlilegt að þetta sé gert með skilatryggingargjaldi sem lagt verði á við kaup nýrra bifreiða. Sá háttur tíðkast víða erlendis hjá þjóðum sem komnar eru lengra í umhverfisverndarmálum en Íslendingar. Við þurfum ekki að leita lengra en til Noregs til að sjá hve gott skipulag er á hlutunum þar. Þar greiða bílaeigendur skilatryggingargjald við kaup á bílum. Skilatryggingargjald er ætlað til að kosta eyðingu bifreiðarflaks í brotajárnsvinnslu og til að tryggja að eigandinn skili bifreið á réttan stað þar sem hann fær helming upphæðarinnar endurgreiddan.

Auk þess má segja að skilatrygging geri eftirfarandi gagn:

1. Brotajárni er skilað á hagkvæmari hátt til endurvinnslu.

2. Bifreiðaflök og annað brotajárn verður ekki skilið eftir á víðavangi. Ef svo er þá getur einhver tekið bifreiðarflakið og innheimt skilagjaldið.

3. Í þessu felst ákveðin hugarfarsbreyting hjá almenningi.

Hér er um hluta af mun stærra vandamáli að ræða sem er söfnun og endurvinnsla brotajárns almennt. Þessum málum hefur lítið verið sinnt af hálfu hins opinbera til þessa. Hins vegar hafa einkaaðilar, svo sem fyrirtækið Sindra-Stál hf. í Reykjavík, komið hér við sögu á liðnum árum og unnið merkilegt brautryðjendastarf í þessum efnum. Með skipulögðu átaki er unnt að gera mun meira í endurvinnslu úrgangsefna, í þessu tilfelli úreltra bifreiða.

Skilatryggingargjaldið væri hvatning til eigenda að skila úreltum bifreiðum til eyðingar. Í því felst einnig óbein skipulögð söfnun tugþúsunda ónýtra bifreiða til þeirra sem mundu annast eyðingu þeirra.

Við flm. leggjum áherslu á ómengað umhverfi, hreint og fagurt land. Efni þessarar till. stefnir að því markmiði. Flm. vænta þess að till. fái góðar undirtektir. Að lokinni umræðu leggjum við til að henni verði vísað til allshn.