26.11.1987
Sameinað þing: 23. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1318 í B-deild Alþingistíðinda. (917)
132. mál, verndun ósonlagsins
Flm. (Álfheiður Ingadóttir):
Virðulegi forseti. Við Íslendingar búum í ríku og gjöfulu landi. Þótt tekjum okkar og neyslu sé vissulega misskipt erum við ein af neyslufrekustu þjóðum heims. Það sýna okkur og sanna tölur um sykurneyslu, um bílaeign og margt fleira. Síðasti ræðumaður í þessum stól gat þess að hér söfnuðust fyrir 10–20 þús. bílhræ á ári. Í gær var mér sagt hér í þinghúsinu að við ættum nýtt heimsmet, að þessu sinni í plastnotkun: 20 kg á mann á ári.
Það er öllu hent og hús brotin, nýtt keypt og byggt í staðinn. Þetta eru einkenni neyslusamfélagsins. Það er sóknin eftir skammtímagróða og svokölluðum lífsgæðum sem ræður ferð. Við vitum hverjar afleiðingarnar eru ef ekki verður tekið upp nýtt verðmætamat á þessari jörð. Vanþekking er ekki sú afsökun sem við berum við, heldur hitt hversu fáir og smáir við erum. Sóun okkar á auðlindum náttúrunnar sé svo lítið brot af sóun mannkyns, mengun af okkar völdum svo lítill hluti af mengun fjölmennra iðnaðarþjóða. Þetta ásamt fjarlægð okkar frá helstu mengunaruppsprettum í austri og vestri er afsökun okkar fyrir því að hér á landi er umræða um alþjóðlega umhverfisvernd enn á frumstigi og þátttaka Íslendinga í alþjóðasamstarfi þar um nær engin.
Ég mæli hér fyrir till. til þál. um verndun ósonlagsins sem ég flyt ásamt hv. þm. Hjörleifi Guttormssyni og Steingrími J. Sigfússyni. Till., virðulegi forseti, miðar að því að við Íslendingar öxlum ábyrgð okkar í samfélagi þjóðanna og leggjum okkar litla skerf af mörkum til þess að stöðva vaxandi þynningu ósonlagsins sem nú stefnir lífsskilyrðum á jörðinni í stórfellda hættu.
Till. er á þskj. 137 og hljóðar svo:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni:
1. að gera nú þegar ráðstafanir til að draga úr notkun ósoneyðandi efna hér á landi,
2. að hefja án tafar þátttöku í sameiginlegu átaki annarra Norðurlandaþjóða sem hafa sett sér það takmark að minnka notkun ósoneyðandi efna um 25% fyrir árið 1991 og um a.m.k. 50% fyrir árið 1999,
3. að efna til samstarfs opinberra stofnana og sérfræðinga í viðkomandi iðngreinum til að gera áætlun um hvernig draga megi úr og hætta notkun þessara efna hér á landi,
4. að staðfesta svo fljótt sem við verður komið Montreal-samninginn um verndun ósonlagsins frá 16. september 1987 og Vínarsáttmálann frá 22. mars 1985, um sama efni.“
Ég ætla ekki að eyða löngu máli í útlistun á eyðingu ósonlagsins, né heldur afleiðingum þess ef ekkert verður að gert. Það var gert ágætlega á síðasta þingi þegar Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir mælti fyrir þáltill. sinni og fleiri þm., um bann við innflutningi og notkun ósoneyðandi efna.
Í grg. með till. þeirri sem er á dagskrá, svo og í fylgiskjali I, sem er erindi Sigurbjargar Gísladóttur, deildarefnafræðings hjá Hollustuvernd ríkisins, er einnig gerð ítarleg grein fyrir staðreynd málsins sem er þessi:
Úrgangsefni frá efnaiðnaði á jörðu niðri eru smám saman að eyða ósonlaginu sem verndar jarðarbúa fyrir skaðlegum útfjólubláum geislum sólar. Þynningin sl. átta ár nemur 4–5%. Meira en helmingur þeirrar þynningar er talinn vera af völdum freona og halona, en það eru lofttegundir sem stíga upp í heiðhvolfið úr úðabrúsum, svampi, frauðplasti slökkvitækjum og kælikerfum.
Það var árið 1974 að bandarískur efnafræðingur, Sherwood Rowlands að nafni, benti á þá hættu sem í stefnir með notkun þessara lofttegunda í iðnaði. Enginn dró í efa kenningu hans um keðjuverkandi niðurbrot ósons í tilraunastofum, en vísindamenn voru ekki á einu máli um hvort þessa gætti uppi í heiðhvolfinu sjálfu. Um það hver áhrifin yrðu ef svo væri efaðist hins vegar enginn.
Sem fyrr sagði verndar ósonlagið jarðarbúa fyrir skaðlegum útfjólubláum geislum sem valda m.a. húðkrabbameini hjá mönnum og dýrum. Útfjólublá geislun er einnig skaðleg gróðri í sjó og a landi. Einkum er þörungasvifið, undirstaða lífkeðju sjávar, viðkvæmt fyrir útfjólublárri geislun.
Aukin losun halona, freona og annarra úrgangsefna í andrúmsloftið veldur líka hækkandi meðalhita á jörðu niðri. Úrkomubelti og vindakerfi geta breyst og sjávarstaða hækkað með bráðnun jökla. Það er því ekki aðeins líkamleg heilsa manna sem hér er í veði, heldur lífsviðurværi þeirra og aðbúnaður allur. Áhyggjur manna vegna þessarar skelfilegu framtíðarspár hafa farið vaxandi eftir því sem vísbendingar þessari kenningu til stuðnings hafa hrannast upp.
Það var þó ekki fyrr en sl. haust, þegar Geimferðastofnun Bandaríkjanna kynnti nýjar niðurstöður rannsókna yfir Suðurskautslandinu, að fyrir lágu gögn sem staðfestu hana. Gatið í ósonlaginu yfir suðurhveli hefur aldrei verið stærra. Ósonmagnið þar hefur minnkað um helming, eða um 50%, frá árinu 1979. Jafnframt mældist þar nú hundraðfalt meira magn af freonum en í tempraða beltinu og telja menn nú engan vafa leika á samhenginu þarna á milli.
Í mars 1985 gekkst Umhverfismálastofnun Sameinuðu þjóðanna fyrir alþjóðaráðstefnu í Vínarborg þar sem 35 þjóðir undirrituðu sáttmála um verndun ósonlagsins. Þeirra á meðal voru Noregur, Danmörk, Svíþjóð og Finnland. Þegar árið 1986 leið án þess að í augsýn væri raunverulegur árangur og frekari samkomulagsumleitanir virtust vonlitlar tóku þessi fjögur lönd sig saman, ákváðu að bíða ekki lengur heldur hefjast handa upp á sitt eindæmi.
Á þingi Norðurlandaráðs á þessu ári, nánar tilgreint þann 25. febr. 1987, héldu umhverfismálaráðherrar þessara fjögurra landa fund sem markaði tímamót. Þar var ákveðið að hvert land gerði úttekt á notkun sinni á freonum á árinu 1986, miðað við innflutning á hreinu efni. Jafnframt skyldi svara spurningunni um það hvort unnt yrði að minnka notkunina um fjórðung fyrir árið 1991.
Það var skipuð sérstök vinnunefnd á vegum embættismannanefndar um umhverfismál til þess að fylgja þessum verkum eftir. En embættismannanefndin sjálf hefur tvívegis komið saman frá því í febrúar, fyrst 18. júlí og svo aftur 18. nóv., þ.e. á fimmtudegi fyrir réttri viku. Íslendingar eiga þrjá fulltrúa í þessari embættismannanefnd. Enginn þeirra mætti á þá tvo fundi sem haldnir hafa verið síðan 25. febrúar 1987.
Á meðan þessu starfi fór fram á Norðurlöndum, nema hér á Íslandi, var hafinn undirbúningur nýrrar ráðstefnu um verndun ósonlagsins á vegum hinna Sameinuðu þjóða. Ráðstefnan var haldin í Montreal í Kanada um miðjan september sl., og 16. september undirrituðu 24 þjóðir ásamt Efnahagsbandalagi Evrópu þar samning sem miðar að því að iðnaðarþjóðirnar minnki notkun sína á freonum um 20% fyrir 1994 og um 50% fyrir 1999, miðað við ársnotkun 1986.
Vart hafði blekið þornað á Montreal-samningnum þegar Geimferðastofnun Bandaríkjanna kynnti þær niðurstöður sem ég hef þegar rakið. Hvort sem sú er eina ástæðan eða ekki hafa þær raddir orðið æ háværari sem telja Montreal-samninginn ganga of skammt. Meðal þeirra sem tekið hafa í þann streng er Birgitta Dahl, umhverfismálaráðherra Svía.
Þannig var staðan þegar ráðherranefnd um umhverfismál hittist á ný hinn 7. okt. sl. Íslenski samstarfsráðherrann í þessum málaflokki, félmrh., sat ekki þann fund og reyndar enginn íslenskur ráðherra. En þar lágu fyrir svör frá hinum löndunum fjórum. Notkun á freonum hafði verið könnuð og hún var á árinu 1986 0,5 til 1 kg á mann. Ég vil í þessu sambandi vísa til töflu ll sem er að finna í grg. þessarar till. á bls. 3. Þar kemur fram að sameiginlega nota þessi lönd ríflega 15 þús. tonn af hreinum freonum. Það er ekki stór hluti heimsframleiðslunnar sem er um 1 millj. tonna.
Svarið við spurningunni um hvort 25% niðurskurður væri mögulegur á næstu þremur árum var já frá löndunum öllum. Og það má segja að í svörunum sumum hafi falist: Já, það er enginn vandi.
Niðurstaða ráðherrafundarins, hinn 7. okt. sl., var að Norðurlönd halda fast við fyrri áætlun um niðurskurð á notkun þessara efna, enda þótt Montreal-samningurinn hafi verið gerður í millitíðinni. Hins vegar hvetur ráðherranefndin til þess að löndin staðfesti hann hið fyrsta og mælir með öðrum aðgerðum sem raktar eru á bls. 3 og 4 í grg. þessarar till.
Í fylgiskjali Il, sem er samþykkt ráðherrafundarins ásamt fylgigögnum, má einnig sjá hvernig hvert land hyggst draga úr notkun sinni, en það er nokkuð misjafnt eftir aðstæðum. Alls staðar er stefnt að því fyrst að hvetja til og gera samninga um minni notkun, en dugi það ekki til að ná settu marki eru löndin reiðubúin til þess að beita öðrum ráðum svo sem lagaboði eða skattlagningu á umrædd efni.
Það er miður, virðulegi forseti, að þurfa að segja það hér að Íslendingar hafa þrátt fyrir samstarfið í Norðurlandaráði ekki tekið þátt í þessu undirbúningsstarfi, ekki safnað saman eða skilað inn upplýsingum um notkun þessara efna hér á landi, né heldur áætlun um hvernig draga megi úr henni. Hvernig getur staðið á þessu? Sú skýring sem nærtækust er og mér kemur fyrst í hug er að hér á landi fer enginn ráðherra öðrum fremur með umhverfismál. Kannski síst hæstv. félmrh. sem þó er samstarfsráðherra á þessu sviði. Umhverfismálin, þessi mikilvægi málaflokkur, er dreifður og þar með hornreka í nær öllum ráðuneytum. Umhverfismálin eru munaðarlaus í stjórnkerfi okkar.
Fyrri ríkisstjórn hafði uppi mikil fyrirheit um bót og betrun í þessum efnum eins og reyndar svo mörgum öðrum þótt lítið yrði um efndir. Í starfsáætlun núv. ríkisstjórnar er einnig ákvæði um, með leyfi forseta, að „sett verði almenn lög um umhverfismál og samræming þeirra falin einu ráðuneyti“.
Sú staðreynd að samstarfi um umhverfismál á vegum Norðurlandaráðs var hætt eftir að þessi ríkisstjórn tók við gefur litlar vonir um efndir þessa ákvæðis í stjórnarsáttmála. Því það dugir ekki að líta á Ísland sem einangrað eyland fjarri öðrum mannabyggðum þegar umhverfisvernd er annars vegar. Þær hættur sem nú steðja að andrúmslofti og lífsskilyrðum allra jarðarbúa eru svo miklar og fjölþættar að þær krefjast sameiginlegs átaks allra þjóða. Þar mega Íslendingar ekki lengur sitja hjá. Við vitum það líka af reynslunni af gerð Hafréttarsáttmálans að rödd Íslands á alþjóðavettvangi getur skipt máli.
Ég tel mig, virðulegi forseti, hafa rökstutt tvo liði till., nr. 2 og 4, þ.e. annars vegar um að við sláumst í hóp Norðurlandaþjóðanna og setjum okkur sama mark og þær við niðurskurð á notkun þessara efna hérlendis og hins vegar að við staðfestum Montreal-samninginn og Vínarsáttmálann sem hann byggir á.
Það er hins vegar nauðsynlegt að byrja á tiltektinni heima hjá sér áður en maður fer að setja út á heimili annarra. Ég nefndi í upphafi míns máls að við Íslendingar værum meðal neyslufrekustu þjóða heims. Og það er því miður ekkert sem bendir til þess að framlag okkar til eyðingar ósonlagsins sé minna á mann en framlag milljónaþjóðanna, þvert á móti. Það er lítið vitað um notkun þessara efna sem hráefna eða blandaðra efna í iðnaðarframleiðslu hér á landi, hvað þá um magn þeirra í fullbúnum iðnaðarvörum. Þó hefur einn maður, Páll Lúðvíksson vélaverkfræðingur, gert tilraun til þess að taka saman upplýsingar um þessa notkun. Sl. sumar dró hann út úr innflutningsskýrslum 1986 töluna 208 tonn af kælivökva. Ef þetta væri hið eina sem hér væri notað af freonum, sem það er örugglega ekki, jafngilti það 0,85 kg á hvert mannsbarn á landinu eða meira en á hinum Norðurlöndunum öllum að Danmörku undanskilinni þar sem notkunin 1986 var 1 kg á mann. Það er þó kostur í þessu sambandi að það er ekkert sem segir að okkur ætti að vera erfiðara en hinum Norðurlandaþjóðunum að draga úr notkun þessara hættulegu efna eins og 1. gr. till. gerir ráð fyrir.
Ég vil vísa til grg. á bls. 4 þar sem raktar eru í fimm liðum nokkrar þær ráðstafanir sem ríkisstjórnin gæti beitt til þess að draga strax úr notkun ósoneyðandi efna hér á landi.
Í fyrsta lagi að ríkisstjórnin stuðli að aukinni notkun CFC-22 í stað CFC-12 — og ég ætla ekki að fara mikið nánar út í þessi heiti á tilbúnum freonum, en þetta eru tveir freonar — þar sem því verður við komið í kælikerfum og varmadælum. CFC-22 hefur aðeins 9% eyðingarmátt á við CFC-12. Það er ljóst að kælikerfi ýmiss konar eru útbreidd og mikilvæg hér á landi vegna fiskiðnaðarins. Og þótt varmadælur séu ekki mjög útbreiddar fer notkun þeirra vaxandi. Annars staðar á Norðurlöndunum eru 13– 25% allrar freon-notkunar bundin við kælikerfi og eru þá ísskápar og frystikistur í heimahúsum undanskildar nema í Noregi. Búast má við svipuðum eða jafnvel hærri hlutfallstölum hér á landi.
Það er talið að auka megi notkun þessa óvirkara freons, sem er nr. 22, í stað þess nr. 12, en CFC-22 er enn sem komið er hvergi á bannlista. En það er brýnt að þróa aðferðir til þess að nota hættuminna efnið í fiskiðnaði okkar þar til hættulaust efni finnst.
Í öðru lagi: Að banna innflutning og framleiðslu á úðabrúsum sem innihalda freon sem úðunarefni. Árið 1978, fjórum árum eftir að fram var sett kenningin um eyðingu ósonlagsins af völdum freona, þá bönnuðu Bandaríkjamenn notkun á þessu efni á úðabrúsa. Kanadamenn, Svíar og Norðmenn hafa einnig bannað ósoneyðandi efni á úðabrúsum. Þannig hafa stórir markaðir lokast fyrir framleiðendum alls kyns úðunarefna og þeir hafa einfaldlega brugðist við með því að nota önnur úðunarefni í staðinn. Það er því gjörsamlega sársaukalaust að banna innflutning og notkun þessara efna á úðabrúsum hér á landi. Nær öll efni, lyf jafnt sem hreinsiefni og lökk, eru nú til á úðabrúsum sem ekki innihalda freon og þetta hlýtur að teljast eðlilegt fyrsta skref til þess að koma í veg fyrir að grípa þurfi til alvarlegri aðgerða síðar meir.
Í þriðja lagi: Að stuðla að betri nýtingu og endurnotkun ósoneyðandi efna í plastiðnaði og auðvelda framleiðendum að taka í notkun önnur hættuminni blástursefni til svamp- og einangrunargerðar.
Í fjórða lagi: Að tryggja uppsöfnun, endurvinnslu og örugga förgun eða bruna ósoneyðandi efna þar sem þau eru notuð sem leysiefni í iðnaði og fatahreinsun.
Í fimmta lagi: Að auka ekki frá því sem nú er innflutning á halonum til notkunar í eldvarnarkerfum.
Hvað síðasta liðinn varðar vil ég vekja athygli á því að með mikilli og aukinni notkun tölvukerfa hefur notkun á halon-slökkvitækjum einnig aukist gífurlega hér á landi. Mér er kunnugt um að í einu húsi hér í borg eru yfir 100 slík tæki sem innihalda a.m.k. 400 kg af haloni. En menn telja sársaukalaust að auka ekki við þann innflutning frá því sem nú er og þess ber að geta að Eldvarnareftirlit Reykjavíkurborgar hefur mælt mjög gegn aukinni útbreiðslu þessara slökkvitækja.
Hvað 3. lið tillögunnar varðar, um að efna til samstarfs opinberra stofnana og sérfræðinga í viðkomandi iðngreinum til að gera áætlun um hvernig draga megi úr og hætta notkun þessara efna hér á landi, er óþarft að hafa mörg orð. Það er nánast eðlilegt að kalla til sérfræðinga frá Orkustofnun, Iðntæknistofnun og viðkomandi iðngreinum til þess að geta framkvæmt þetta mikilvæga efni.
Frú forseti. Í lok grg. með þessari till. er bent á að samdráttur í notkun freona í kælikerfum og bann við notkun úðabrúsa með freoni gæti orðið til þess að innflutningur og notkun þessara hættulegu efna drægist saman um fjórðung hér á landi. Það hlýtur að vera lágmarksframlag okkar Íslendinga á næstu þremur árum til viðhalds lífi á þessari jörð því að eins og góður málsháttur frá Kenya segir: Við höfum ekki fengið jörðina til eignar frá foreldrum okkar. Við höfum fengið hana að láni frá börnum okkar.
Við skulum reyna, Íslendingar, að haga okkur í samræmi við þetta og ég vil leggja til að till. fái, að lokinni þessari fyrri umræðu, umfjöllun í hv. félmn. Sþ.