15.10.1987
Sameinað þing: 3. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 134 í B-deild Alþingistíðinda. (93)
Síðustu efnahagsákvarðanir ríkisstjórnarinnar
Árni Gunnarsson:
Herra forseti. Til þess að hnykkja á því sem ég sagði áðan: Nú eru þegar liðnar 45 mínútur af fundinum og sá sem stofnaði til þessarar utandagskrárumræðu er ekki staddur hér til að hlusta á mál þeirra sem bæði eru að svara honum og þeirra sem gagnrýna orð hans. Hann hefur ekki tækifæri í raun til að svara fyrir sig af því að hann er ekki staddur í salnum. Af þessari ástæðu finnst mér einsýnt að þessi umræða verði felld niður. Hún þjónar engum tilgangi meðan þannig er ástatt og kannski einkum og sér í lagi, herra forseti, eftir að hv. þm. Albert Guðmundsson hefur lýst yfir því að þessi umræða í dag fari ekki fram í samstarfi stjórnarandstöðunnar heldur hafi hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson verið einn um það að biðja um þessa umræðu utan dagskrár. Þess vegna endurtek ég það, herra forseti, mér finnst einsýnt að þessari umræðu hljóti að ljúka.