30.11.1987
Sameinað þing: 24. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1347 í B-deild Alþingistíðinda. (940)
139. mál, könnun á mikilvægi íþrótta
Kristín Einarsdóttir:
Herra forseti. Ég get tekið undir með flm. að íþróttir eru mjög mikilvægar og ég held að það sé ekki nokkur einasti vafi á því. Það er alltaf spurning hvort þarf að gera miklar kannanir og ég get tekið undir með þeim sem hér hafa talað að það er alltaf spurning hversu mikið maður á að leggja í að kanna hluti sem kannski allir eru sammála um að séu augljósir, eins og t.d. það hversu mikilvægar íþróttir eru. Ég held fyrir mína parta að það sé allt of mikil áhersla lögð á keppnisíþróttir og það sé t.d. ein af ástæðunum fyrir brottfalli kvenna úr íþróttum. Hv. þm. Hreggviður Jónsson sagði áðan að það væri mikil þátttaka kvenna í skíðaíþróttinni. Það held ég að sé alveg rétt hjá honum, sérstaklega í svokallaðri almenningsíþrótt varðandi skíðin, ekki endilega svo mikið í keppni. Ef menn fara í sund eru konur þar mjög margar og einnig ef farið er út að hlaupa. Konur taka yfirleitt mikinn þátt í almenningsíþróttum. Ég held að það eigi að leggja miklu meiri áherslu á almenningsíþróttir fram yfir keppnisíþróttir.
Ég vek athygli flm. á 7. lið þessarar till. þar sem hann talar um hvaða ástæður liggi að baki mismunandi þátttöku karla og kvenna, en síðan setur hann unglinga í einn hóp. Ég held að þetta byrji miklu fyrr. Íþróttir fyrir stráka eru t.d. bæði fótbolti og handbolti. Þeir sem eiga bæði stráka og stelpur kvarta mjög yfir því að það sé miklu auðveldara að koma drengjum í íþróttir, t.d. í fótbolta, það er mjög algengt, en stelpur eru yfirleitt ekki hrifnar af fótbolta og það er miklu erfiðara fyrir þær að komast í þær íþróttir sem þeim henta betur, svo sem fimleika og annað. Þar er aðstaðan miklu verri. Ég held að það byrji miklu fyrr og er e.t.v. ein skýring á mismunandi þátttöku karla og kvenna. Þessi liður höfðar meira til þess að maður sé orðinn fullorðinn þegar þetta fer að breytast. Þetta gerist miklu fyrr. Það er ekki aðalánægjan að komast á verðlaunapallinn heldur að taka þátt. Þess vegna eru íþróttir mjög mikilvægar fyrir almenning. Þó hitt geti vel verið rétt, sem kom hér fram, að keppnisíþróttir séu fyrirmynd fyrir hina og það kannski örvi, er aðstaða fyrir okkur hin, sem ekki erum endilega að keppa að því að komast á verðlaunapall, miklu mikilvægari.