30.11.1987
Sameinað þing: 24. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1349 í B-deild Alþingistíðinda. (942)
139. mál, könnun á mikilvægi íþrótta
Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Hv. 9. þm. Reykn. hélt því fram að aldrei fyrr hefði þjóðin lagt meira til íþróttahreyfingarinnar en í dag og réðist mjög ómaklega að hæstv. utanrrh. í því sambandi og talaði um að hann blaðraði um þessi mál úti í bæ en ekki á þeim vettvangi sem hann ætti að tala á.
Ég vil ekki blanda mér í þessa umræðu, en mér finnst þetta ekki beinlínis skipta máli í sambandi við þetta mál því það mikilvægasta er að ástundun íþrótta hefur mikil áhrif. Staðreyndin er sú að Alþingi hefur aldrei lagt minna til íþrótta en í dag, til íþróttahreyfingarinnar. Staðreyndin er líka sú að með því að leggja niður Íþróttasjóð ríkisins verður mjög óhægt um vik fyrir hina frjálsu íþróttahreyfingu sem er mikilvægasti hlekkurinn. Án hinnar frjálsu íþróttahreyfingar væru engar íþróttir iðkaðar í landinu og það væri ekki búið að byggja mikið af íþróttamannvirkjum því hún er undirstaðan undir að hér sé öflugt íþróttastarf.
Ég veit ekki hvort menn gera sér grein fyrir því að ef hin frjálsa hreyfing hefði ekki unnið svo ötullega að þessum málum hefðu mörg af okkar helstu mannvirkjum aldrei risið jafnvel þó þau hafi verið myndarlega styrkt af bæ og bæjarfélögum og ríkinu sem ber að meta. En þrátt fyrir allt er það hin frjálsa íþróttahreyfing sem hefur borið hitann og þungann af þessari starfsemi. Hafa margir mikilhæfir forustumenn verið þar að verki, lagt dag við nótt og aldrei tekið krónu fyrir. Flestir þeirra hafa líka haft töluverð útgjöld af því að vera í forustu fyrir íþróttahreyfinguna. Ég held að menn ættu að gera sér grein fyrir því að sú starfsemi er byggð á öflugum grunni, þessum öfluga vilja mannsins til að koma upp betri aðstöðu fyrir fólkið í landinu.
Hv. 11. þm. Reykv. minntist á að það ætti að leggja áherslu á almenningsíþróttir en ekki keppnisíþróttir. Ég ætla ekki að fara að munnhöggvast út af því, en staðreynd er að ef aldrei hefðu verið keppnisíþróttir hefðu aldrei verið almenningsíþróttir heldur. Það er sama að segja um þetta, að forustumenn keppnisíþróttanna og keppnismennirnir hafa staðið í eldlínunni, komið upp íþróttamannvirkjunum, komið með nýjungar sem hafa orðið til þess að það hefur komið upp aðstaða fyrir almenning.
Ég hef sem forustumaður í Skíðasambandi Íslands í fjölda ára staðið fyrir öflugu starfi fyrir almenning. Við höfum lagt mikla áherslu á þátttöku almennings í skíðaíþróttinni og við höfum beitt okkur eins mikið og við höfum getað fyrir aðstöðu fyrir almenna borgara til að iðka skíðaíþróttina en ekki aðeins fyrir keppnismennina. En þrátt fyrir allt hefði aldrei nein þessi aðstaða orðið til ef keppnismennirnir hefðu ekki beitt sér fyrir því. þeir hafa staðið tímunum saman hér uppi í fjöllum og byggt skíðamannvirkin flest hver. Staðið dögum saman við mótahald og sett á laggirnar mót fyrir almenning, sem hefði aldrei annars náð fram að ganga. Þetta er nefnilega það sem er mjög mikilvægt í þessu sambandi.
Ég er ekki viss um að menn geri sér grein fyrir hve mikið starf hefur verið innt af hendi í hinum fjölmörgu íþróttum út um allt land. Það þætti alþm. víst lítil laun fyrir þau störf sem margir ágætir menn um allt land hafa innt af hendi í þessu sambandi, menn sem hafa eytt ævi sinni, orku og frítíma í það að koma þessum málum áfram.
Og af því að hv. 11. þm. Reykv. minntist á þátttöku kvenna í íþróttum, þá vil ég segja að þátttaka þeirra hefur farið vaxandi, eins og ég kom inn á áðan. Það byggist fyrst og fremst á því að það er breyting á hugsunarhætti. Ég fullyrði það að á mörgum sviðum standa þær jafnfætis í iðkun íþrótta, þar á meðal á skíðunum, vegna þess að áhugi þeirra hefur verið mikill fyrir íþróttinni og er vaxandi. Það er það sem skiptir máli. Ég held að það sé ekki hægt að ganga fram hjá því að það er fyrst og fremst áhuginn fyrir íþróttinni sem skiptir máli en ekki hvort einhver mismunandi aðstaða sé fyrir kynin. Ég held að það sé ekki meginatriðið í þessu.
Hv. 14. þm. Reykv. taldi mikilvægt að efla þjóðarmetnaðinn með því að við kepptum fyrir hönd lands okkar erlendis. Það er rétt. En ég er ekki viss um að allir þm. geri sér ljóst að fjölmargir af okkar keppnismönnum í mörgum íþróttagreinum hafa um árabil greitt fargjöld og lagt út kostnað við uppihald úr eigin vasa til að taka þátt í þessum mótum. Þeir hafa greitt það úr eigin vasa vegna þess að íþróttahreyfingin hefur ekki verið þess megnug að styrkja þessa menn sem hafa margir verið mjög frambærilegir á erlendan mælikvarða.
Það er svo að þó að einhverjar smáupphæðir renni til hinna frjálsu félaga, þá eru það afskaplega litlar upphæðir á þann mælikvarða sem íþróttahreyfingin hefur eytt, ef maður getur sagt það, og lagt fram sjálf. Ég kom inn á það áðan að innan við 2% af fjármunum íþróttahreyfingarinnar hafi verið lögð fram á fjárlögum. Ég held að það væri nú töluvert annar bragur á mörgum íþróttagreinum ef íþróttamenn okkar hefðu fengið jafnmyndarlegan styrk og félagar þeirra á Norðurlöndunum.
Það er ekki nokkur vafi á því að það sem íþróttahreyfingin hefur gert er mjög mikilvægt og það er einnig rétt sem hv. 14. þm. Reykv. sagði að Reykjavíkurborg og mörg bæjarfélög hafa lagt mikið til íþróttanna í mannvirkjagerð og stuðningi og því ber að fagna. Ríkið hefur lagt til mun minna, en ég vona að það eigi eftir að aukast í framtíðinni.