30.11.1987
Sameinað þing: 24. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1368 í B-deild Alþingistíðinda. (958)
153. mál, lagning vegar með suðurströnd Reykjanesskaga
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Ég kem hingað til að taka heils hugar undir það sem felst í þessari till. til þál. um gerð kostnaðar- og framkvæmdaáætlunar við lagningu vegar með suðurströnd Reykjanesskaga. Ég held að þetta sé mjög þörf og góð tillaga og ég verð að segja að það kæmi mér á óvart ef sú könnun sem lagt er til að hér verði gerð leiddi ekki í ljós að hér væri um verulega arðbæra framkvæmd að ræða.
Rökin hafa nú þegar komið fram hér í umræðunni og ég tek undir þau. Rökin felast einfaldlega í því að líta á landakortið og skoða hvernig það lítur út. Ég held að það fari ekkert milli mála að ef það verður gerður góður vegur á þessari leið yrði það veruleg lyftistöng fyrir þau héruð sem þarna eiga hlut að máli. Minnst hefur verið á hérna í umræðunni þá samvinnu sem orðin er á milli þeirra staða sem eru nefndir í tillögunni og góður vegur þarna á milli mundi vissulega efla verulega það samstarf og eins og ég sagði áðan verða veruleg lyftistöng atvinnulífi beggja vegna. Það er einnig og ekki síður mjög mikilvægt að stytta leið Sunnlendinga til okkar eina alþjóðlega flugvallar og sömuleiðis, eins og hér hefur komið fram, gæti þetta orðið til að létta þann vanda sem við okkur blasir í umferðarmálum á þessu landshorni.
Ég tel sjálfsagt og eðlilegt að koma þessum vegarkafla inn í umræðuna og þakka hv. flytjendum þessa máls fyrir að bera það hérna inn á Alþingi. Það væri svo óneitanlega gaman að heyra í öðrum en Reykjanesþingmönnum um þetta mál.