02.12.1987
Efri deild: 14. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1372 í B-deild Alþingistíðinda. (967)

137. mál, launaskattur

Skúli Alexandersson:

Herra forseti. Einhvers staðar stendur sú gullvæga setning að mjór sé mikils vísir. Einhvern veginn hef ég tilfinningu fyrir því að varðandi þá álagningu, sem hæstv. fjmrh. var að útlista hér á sjávarútveginn, og sem eftir því sem hann sagði mundi ekki skipta sköpum fyrir sjávarútveginn, sé aðeins um upphafið að ræða, enda felur frv. það raunverulega í sér að þetta er áfangi að því að jafna launaskattinn þannig að hann sé lagður jafnt á alla atvinnuþætti í landinu. Ráðherra upplýsti að heildartekjur frystingarinnar í landinu væru 15,5 milljarðar og það þýddi að hér væri aðeins um að ræða fjórðung úr prósenti á þær heildartekjur. Ég geri ráð fyrir því að hér sé verið að ræða um veltu, söluveltu fyrirtækjanna og það gefur auga leið að hér er ekki um svo lítið að ræða við þá stöðu sem þessi atvinnugrein býr við í dag.

Fastgengisstefna ríkisstjórnarinnar kemur hvað harðast niður á sjávarútveginum og ekki þá síst frystingunni sem hæstv. ráðherra tók hér til viðmiðunar. Aðilar sjávarútvegsins hafa mótmælt þessari álagningu og bent hefur verið á það að hér sé verið að hverfa frá þeim samningum sem gerðir voru við fiskvinnsluna eða Vinnuveitendasambandið og ASÍ í sambandi við þjóðarsáttina á árinu 1986. Er það náttúrlega miður að frá þeim grundvallarsamningum sé horfið á þann veg sem hér er lagt til.

Til viðbótar við það að sjávarútvegurinn á undir högg að sækja í sambandi við gengisskráningu hefur það verið upplýst að minnkandi sjávarafli muni koma niður á efnahag landsins sem raun ber náttúrlega vitni um og við þurfum ekkert að efast um og fyrst og fremst kemur hann þyngst niður á grunngreinarnar, framleiðslugreinarnar sjálfar. Okkur er boðað það að við verðum að taka tillit til þess í sambandi við efnahagsþróun komandi árs að það verði a.m.k. 10% skerðing á bolfiskafla eða þorskafla, það kemur til viðbótar svona smákroppi eins og ráðherra sagði að þetta væri.

Það er líka verið að boða það að haldið skuli áfram óbreyttri fiskveiðistefnu. Og hvað þýðir það? Það þýðir að áfram skuli vera sá verðmætisauki í sjávarútveginum sem við vitum að við höfum búið við undanfarin þrjú ár, að það er allt að því tvöfalt verðmæti sem fiskvinnslan verður að standa undir í sambandi við fjármagnskostnað fiskiskipa. Hver þátturinn á fætur öðrum er lagður á þennan grunnatvinnuveg. Það er ekki uppbyggileg stefna sem hæstv. ríkisstjórn leggur þessum grundvallaratvinnuvegi til þess að byggja á.

Ég vil undirstrika það að ég tel að það hafi ekki átt að fara út í þessa álagningu. Þau rök að atvinnugreinarnar þurfi að standa jafnar fyrir gjöldum held ég að eigi ekki við þarna og síst af öllu að velja til þess þann tíma sem við nú búum við, þar sem sjávarútvegurinn á undir högg að sækja á flestum sviðum.