02.12.1987
Efri deild: 14. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1377 í B-deild Alþingistíðinda. (971)
137. mál, launaskattur
Álfheiður Ingadóttir:
Herra forseti. Ég þakka ráðherra svörin og vænti þess að upplýsingar um fyrirhugaðar álögur á fiskeldi og fiskirækt muni koma hið fyrsta til hv. fjh.- og viðskn. sem væntanlega fær þetta frv. til umfjöllunar.
Það er eins og manni bauð í grun að það er enn djúpt á stóru málunum hjá hæstv. ríkisstjórn. Ef tollafrv. kemur fyrst fram hér í Alþingi nk. mánudag, þá er mjög stuttur tími eftir fyrir alþm. og fyrir Alþingi til þess að fjalla um það einmitt á þeim sama álagstíma og fjmrh. nefndi þegar verið er að afgreiða fjárlög og mörg önnur stórmál. En við því er kannski bara eitt að gera og það er að hæstv. fjmrh. feti í fótspor Castros og fresti jólunum eða alla vega áramótunum um sinn. Ég held að það mætti að skaðlausu láta þetta frv., sem hér liggur fyrir, bíða fram yfir þá dagsetningu.