02.12.1987
Neðri deild: 16. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1399 í B-deild Alþingistíðinda. (985)
84. mál, viðskiptabankar
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Breytingin sem tillaga er gerð um í þessu frv. er eingöngu fólgin í því að inn í 11. gr. laganna um viðskiptabanka verði skotið setningu um það að skylt sé að auglýsa lausar stöður bankastjóra í Lögbirtingablaði og dagblöðum með minnst fjögurra vikna fyrirvara og að með umsókn skuli fylgja rækilegar upplýsingar um menntun og störf umsækjenda.
Skv. 11. gr. laga um viðskiptabanka skal bankaráðið ráða bankastjóra til sex ára í senn og frv. felur eingöngu í sér að bankaráðsmönnum sé sett verklagsregla um það hvernig leita skuli uppi bankastjóraefni. Eins og lögin bera með sér eru það bankaráðin sem eru ábyrg fyrir vali á bankastjórum. Margt mælir með því að þau eigi sjálf að ráða með hvaða hætti þau leiti uppi vænleg bankastjóraefni. Ég bendi á að í vaxandi mæli leita fyrirtæki hér á landi og annars staðar eftir hæfum stjórnendum fyrir milligöngu sérstakra ráðningar- og ráðgjafarfyrirtækja, svokallaðra „hausaveiðara“, sem kanna beinlínis með samtölum og fyrirspurnum hvar sé nú best að bera niður og reyna að telja menn á að leita eftir störfum. Þetta kemur ekki í staðinn fyrir auglýsingar, en það sýnir kannski hvers eðlis þetta mál er.
Yfirlýstur tilgangur frv. er sá að sporna gegn misnotkun valds og aðstöðu við veitingu bankastjórastarfa og það er að sjálfsögðu lofsvert, en ég held blátt áfram talað að auglýsingaskylda breyti litlu um ákvarðanir þær sem hér er um að tefla. Reyndar eru ýmsir lögfræðingar þeirrar skoðunar að með hliðsjón af ákvæðum laga um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna eigi að auglýsa slíkar stöður nokkurn veginn með þeim hætti sem flm. frv. leggja til að bætt verði inn í viðskiptabankalögin.
Ég tel ástæðu til að nefndin sem fjallar um frv. líti á þessi ákvæði og leiti álits lögfróðra manna. En þó er rétt að benda á að það hefur sjaldan farið leynt þegar lausar eru bankastjórastöður og lysthafendur hafa yfirleitt fljótt gefið sig fram og röggsamlega þegar slíkar stöðubreytingar hafa verið í vændum, jafnvel með miklu lengri fyrirvara en fjögurra vikna eins og hér er verið að tala um. Þannig held ég að það sé ekki brestur á auglýsingum sem hér sé um að tefla heldur þurfi að líta til annarra málþátta ef menn eru ósáttir við valið á bankastjórum.
En ég vildi taka það skýrt fram að ég tel ekkert mæla gegn því að auglýsa slíkar stöður. En ég sé hins vegar ekki brýna þörf að bæta slíkum ákvæðum í lögin og held að bankaráðunum sé jafnvel treystandi fyrir þessu og öðru í stjórn bankanna.