02.12.1987
Neðri deild: 16. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 1413 í B-deild Alþingistíðinda. (996)
125. mál, staðgreiðsla opinberra gjalda
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Það er ekki viðeigandi að hafa ýkja mörg orð um frv. á þessu stigi málsins, ekki síst í ljósi þess að það er ástæða til að gagnrýna þann seinagang og drátt sem orðið hefur á því að þessi mál kæmu inn í þingið og til meðferðar, ekki síst miðað við bæði forsögu málsins og eins hitt að þessar viðamiklu kerfisbreytingar í skattamálum eiga að taka gildi um næstu áramót, innan örfárra vikna. Ég mun því hafa mínar athugasemdir eins stuttar og mögulegt er. Ég tek undir þá gagnrýni sem hér var sett fram áðan á það að bagalegt er að störf milliþinganefndarinnar fóru svo seint af stað sem raun ber vitni og í raun næsta illskiljanlegt því að í umræðum á hinu háa Alþingi sl. vetur, nánar tiltekið fyrstu og aðra viku marsmánaðar, þegar verið var að ganga frá lögum um staðgreiðslu skatta og breytingu á tekjuskattafrv. og gildistökufrv. sem þessu tengdust, var einmitt um það rætt að á þeirri afgreiðslu væri nokkur fljótaskrift. Í framhaldi af því bar hv. þm. Svavar Gestsson fram þá tillögu að sett yrði á fót milliþinganefnd til að vinna að málinu í sumar. Undir þá till. var tekið af hæstv. þáv. fjmrh. og skömmu síðar lýsti hann því yfir, nánar tiltekið 10. mars, að hann mundi beita sér fyrir því að slík nefnd yrði skipuð. Það er því næsta illskiljanlegt að það skyldi þurfa að líða fram á haust, fram í september áður en nefndin tók til starfa. Það er bagalegt, eins og t.a.m. þetta frv. upp á 20 gr. ber með sér, vegna þess að það var í raun augljóst mál að gera þyrfti umtalsverðar lagfæringar á lögunum um staðgreiðslu skatta þegar áður en þau kæmu til með að gilda í fyrsta sinn. Það hefði því verið betra ef menn hefðu haft sumarið til að vinna að málinu. Og ég held að röksemdir af því tagi að þurft hafi að bíða eftir álagningu skatta á yfirstandandi ári séu tæpast gildar vegna þess að stór hluti af lagfæringum þeim sem hér eru til umræðu lúta að öðrum tæknilegum atriðum sem auðveldlega hefði mátt byrja að vinna að strax á sl. vori.
Það er enn fremur mjög óheppilegt að tíminn til umfjöllunar á Alþingi sjálfu sé svo stuttur þrátt fyrir að margir hverjir hv. þm. séu nokkuð kunnugir málunum af fyrri afskiptum. Það hefði verið betra ef nefndum þingsins hefði gefist rýmri tími til að skoða málin því ugglaust er það svo að enn má betur fara ýmislegt sem þar er um fjallað.
Það segir í grg. og kom fram í framsöguræðu hæstv. fjmrh. að í meginatriðum sé frv. í samræmi við niðurstöður og álit milliþinganefndarinnar og það er vel, en það hefði verið æskilegt að það kæmi þá fram sundurliðað í hverjum greinum það er ekki í samræmi við ábendingar og álit milliþinganefndarinnar. Ég held að reyndar séu flestar brtt. til bóta og ég tek undir það sérstaklega að ég fagna þeim rýmkunarákvæðum sem 7. gr. frv. felur í sér.
Hér er ýmislegt óafgreitt engu að síður og ekki bólar enn á öðrum fylgifiskum þessarar kerfisbreytingar, þ.e. frv. um tekjuskatta og öðrum sem hér eru boðuð og eru ófá. Vissulega væri æskilegast að þau kæmu nú inn hið allra fyrsta og til meðferðar í nefndum þannig að hægt væri að vinna að þessum málum öllum í samhengi.
Varðandi einstök efnisatriði geymi ég umfjöllun um alla þá liði sem lúta beint að sjálfum tekjuskattalögunum, en vil þó nefna að ég tel að sú afgreiðsla sem hér er á höfð um gjaldheimtufyrirkomulagið hljóti að verða alger bráðabirgðaniðurstaða, enda er það tekið fram í frv. Þar er vandasamt verkefni eftir óleyst þar sem ég tel að hafa verði gott samráð við sveitarfélögin. Það er eitt af mörgu sem tíminn eins og hann hefur verið nýttur hefur ekki leyft að tekið yrði til nógu rækilegrar skoðunar.
Það er ljóst að eftir sem áður mun ýmislegt verða á huldu um nákvæma verkan þessara breytinga. Það er næsta víst að einhverjir hópar munu telja sig bera skarðan hlut frá borði. Einhverjir munu telja að þessar kerfisbreytingar hafi í för með sér röskun á þeirra högum og versnandi afkomu. Væntanlega hagnast þá einhverjir aðilar í staðinn. En það hlýtur að vera hlutverk okkar á löggjafarsamkomunni og er reyndar yfirlýst að reyna að koma þessari breytingu á þannig að hún hafi sem minnsta slíka röskun í för með sér. Þess vegna held ég að það sé nauðsynlegt að ræða strax í upphafi þá hugmynd að komið verði á fót í tengslum við þessa kerfisbreytingu sérstakri áfrýjunarnefnd, sérstakri nefnd sem skipuð verði til að taka fyrir deilumál sem rísa vegna hins nýja fyrirkomulags, og í tengslum við slíka áfrýjunarnefnd þyrfti þá að starfa sérstakur sjóður, leiðréttingar- eða neyðarsjóður sem hægt væri að sækja í fjármagn til að leiðrétta ýmiss konar skakkaföll, ef svo má að orði komast, sem einstaklingar yrðu fyrir vegna þessara kerfisbreytinga, þeir einstaklingar sem sannanlega yrðu hart úti. Það er ekki meiningin að breyta í raun skattbyrðinni með þessari kerfisbreytingu og þar af leiðandi, vegna þess hversu lítill tími hefur unnist til að fara ofan í saumana á því hvernig þetta kemur út fyrir einstaka hópa þrátt fyrir nokkur dæmi sem tekin eru og reiknuð eru út, held ég að það væri mjög af hinu góða ef samstaða gæti náðst um það á hinu háa Alþingi að einhver slík ráðstöfun yrði upp tekin til að tryggja hag þeirra sem kynnu að verða fyrir barðinu á þessum breytingum. Mér hefði þótt æskilegt ef hæstv. fjmrh. hefði tjáð sig eitthvað um þetta mál við 1. umr.
Enn fremur ítreka ég að það væri æskilegt að hann gerði, ef hann hefur það sundurliðað, aðeins betur grein fyrir því hvaða tillögur milliþinganefndarinnar standa út af, eru ekki teknar inn í leiðréttingu í frv.