131. löggjafarþing — þingsetningarfundur

Ávarp aldursforseta.

[14:22]

Aldursforseti (Halldór Ásgrímsson):

Ég býð hv. alþingismenn velkomna til þings. Ég vona að störf Alþingis, 131. löggjafarþings, sem er að hefjast, verði landi og þjóð til heilla.

Fyrir hönd okkar alþingismanna heilsa ég starfsfólki Alþingis og vænti þess að nú sem endranær megum við eiga góða samvinnu í störfum þingsins.