131. löggjafarþing — þingsetningarfundur

Kosning forseta.

[14:48]

Aldursforseti (Halldór Ásgrímsson):

Nú fer fram kosning forseta Alþingis. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. þingskapa eru þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru. Mér hefur borist ein tilnefning, um hv. 2. þm. Norðaust., Halldór Blöndal. Eru aðrar tilnefningar?

Aðrar tilnefningar hafa ekki borist og er því hv. 2. þm. Norðaust., Halldór Blöndal, einn í kjöri. Þar sem aðeins einn er í kjöri fer kosningin fram með atkvæðagreiðslukerfinu eins og á undangengnum þingum ef ekki eru um það athugasemdir. Atkvæðagreiðslan er leynileg. Töflurnar á veggjunum munu aðeins sýna hverjir hafa greitt atkvæði en ekki hvernig þeir greiddu atkvæði og sama gildir um geymsluminni tölvunnar. Þeir sem kjósa Halldór Blöndal ýti á já-hnappinn en þeir sem skila vilja auðu ýta á hnappinn sem merktur er: Greiðir ekki atkvæði. Gult ljós kviknar við miðhnappinn þegar atkvæði hefur verið greitt, sama á hvorn hnappinn er ýtt og eins kviknar aðeins gult ljós á veggtöflunni.

 

[Gengið var til forsetakosningar. Atkvæði féllu þannig að Halldór Blöndal, 2. þm. Norðaust., hlaut 36 atkvæði, 18 þingmenn greiddu ekki atkvæði.]