Fjárlög 2005.
Jón Bjarnason (Vg) (andsvar):
Frú forseti. Ég tek undir þær óskir hv. formanns fjárlaganefndar, Magnúsar Stefánssonar, um von um gott samstarf í nefndinni við vinnu frumvarps til fjárlaga.
Það sem mig langar að inna hv. þingmann eftir er hvort orðið hafi stefnubreyting í Framsóknarflokknum hvað lýtur að skólagjöldum í Háskóla Íslands.
Þegar innritunargjöldin, sem eru bara óbein skólagjöld, voru hækkuð að mig minnir fyrir þremur árum voru um það deilur og þá bárust þær fregnir úr þingflokksherbergi framsóknarmanna að þeir væru andvígir því að taka upp þessi skólagjöld. Nú er lagt til að hækka innritunargjöldin við Háskóla Íslands, sem að mínu viti eru bara bein skólagjöld, um 40% á næsta ári. Það skilar upp undir 200 millj. kr. eða eitthvað á því bili. Styður hv. þingmaður Magnús Stefánsson það sjónarmið og Framsóknarflokkurinn að taka upp og hækka skólagjöld við Háskóla Íslands með þeim hætti sem hér er lagt til?
Í öðru lagi langar mig til að spyrja hv. þingmann um afstöðu hans til þess að hækka komugjöldin á heilsugæslustöðvarnar. (Gripið fram í.) Það eru 26 millj. kr., gert ráð fyrir því, áætlað á næstu fjárlögum. Það er ekki há upphæð. En er það stefna Framsóknarflokksins í heilbrigðismálum að hala inn krónur hér og þar af fólki sem þarf að leita sér læknis, eins og að hala inn nokkra tugi milljóna með hækkun á komugjöldum á heilsugæslustöðvar?