131. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2004.

Fjárlög 2005.

1. mál
[13:49]

Einar Már Sigurðarson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það var athyglisvert að hv. þm. Arnbjörg Sveinsdóttir ræddi nokkuð um fjárhagsleg samskipti ríkis og sveitarfélaga og var auðvitað ekki vanþörf á. En það sem mér þótti skorta á var að talað væri skýrt varðandi það hvort hv. þm. teldi að rétt væri skipt á milli ríkis og sveitarfélaga, hvernig hv. þm. metur þá þróun sem átt hefur sér stað í þeim samskiptum, þ.e. samanburðinn á því hvernig tekjur ríkissjóðs hafa aukist jafnt og þétt og síðan hvernig tekjur sveitarfélaganna hafa þróast sem er auðvitað í allt, allt öðrum takti.

Rétt til upprifjunar fyrir hv. þm. er rétt að geta þess að sveitarfélögin voru rekin með tæplega 6 milljarða kr. halla árið 2002 og rúmlega 5 milljarða kr. halla árið 2001 og það stefnir í rúmlega tvo eða tæplega þriggja milljarða kr. halla á yfirstandandi ári. Það er þess vegna spurning til hv. þm. hvað það er sem hefur valdið þessum vanda hjá sveitarfélögunum og hvernig á því stendur að þessi tregða hefur verið svo við lýði eins og fram hefur komið í því að menn hafa ekki náð árangri í því að ná niðurstöðu í tekjuskiptinguna milli ríkis og sveitarfélaga. Nú veit ég að hv. þm. hefur komið nokkuð nálægt þessum störfum og ætti að geta upplýst þingheim um það hvaða vandi er þarna fyrst og fremst á ferðinni og hvernig á því stendur að ríkissjóður, sem hefur stöðugt verið að bólgna út með vaxandi tekjum í hinum mikla hagvexti sem verið hefur, hefur sýnt slíka tregðu gagnvart sveitarfélögunum. Við vitum nýjasta birtingarformið í þessum vanda sveitarfélaganna sem kemur m.a. fram í því að nú eru allir grunnskólar landsins lokaðir.