Fjárlög 2005.
Drífa Hjartardóttir (S) (um fundarstjórn):
Herra forseti. Það er greinilegt að sumir þeirra sem tekið hafa til máls undir þessum lið hafa sjálfir ekki verið í þingsalnum í dag. Ég hef setið hér frá því í morgun. Ég vil upplýsa hv. þingmenn, sem eru nýkomnir í salinn, um að hér hafa, fyrir utan fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra, verið menntamálaráðherra, samgönguráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra. Forsætisráðherra sá ég og umhverfisráðherra var hér í morgun. Iðnaðarráðherra hefur verið hér auk félagsmálaráðherra og landbúnaðarráðherra. Sjávarútvegsráðherra er í leyfi.
Ég vildi halda þessu til haga vegna þess að mér finnst það lykta af lýðskrumi þegar menn láta svona.