131. löggjafarþing — 3. fundur,  5. okt. 2004.

Fjárlög 2005.

1. mál
[18:52]

Guðjón A. Kristjánsson (Fl):

Hæstv. forseti. Ég ætla ekki að flytja langt mál enda held ég að ég hafi ekki nema svona tíu mínútur. Ég vona að ég ljúki því sem ég ætlaði að segja á þeim tíma.

Ég gerði að umræðuefni í fyrri ræðu minni spurninguna um það hvort þenslan hér á landi dreifðist jafnt um landið og hvort ástæða væri til þess að skoða sérstaklega hvernig menn ætluðu að fara í að hægja á framkvæmdum til að draga úr þenslu. Ég fullyrti og ætla að endurtaka það að ég hef ekki orðið var við nokkra einustu þenslu í mínu kjördæmi, því miður kannski. Ég fagna þeim framkvæmdum sem hafa átt sér stað á Austurlandi og er í raun mjög sáttur við það sem þar er að gerast. Ég vil líka segja að ég er afar ánægður með hvernig til hefur tekist í jarðgangagerð á Austurlandi og hversu hratt þeim verkum hefur miðað áfram.

Í framhaldi af því hlýt ég að velta því fyrir mér hvað í jarðgangagerð valdi þenslu sérstaklega eða hafi veruleg áhrif til að draga úr þenslu. Þá hljótum við að spyrja okkur: Hvað vinna t.d. í raun margir að staðaldri í göngunum milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar? Hversu margir voru þar að verki á þeim vöktum sem þar gengu og hvaða tækjabúnað ætli hafi þurft þar til? Þá má auðvitað spyrja í framhaldi af því: Er sá fjöldi þeirra var að störfum inn í fjalli við að gera jarðgöngin, þ.e. er sá verkþáttur einhver sérstakur þensluvaldur sem slíkur? Mér finnst vanta svör við þessum spurningum. Við verðum að velta þessu fyrir okkur. Þegar verið er jafnvel að hægja á framkvæmdum í jarðgöngum, mjög arðbærum framkvæmdum eins og ég kom að í ræðu minni í dag, er þá stöðvun á verki t.d. 50 manna sem vinna á vöktum við að bora sig í gegnum fjall sú aðgerð að hún hafi einhver veruleg áhrif til þess að draga úr þenslu almennt í landinu, ekki síst ef það er svo verið að framkvæma þessa verkþætti á landsvæðum þar sem nánast engin þensla á sér stað? Þessu vildi ég beina til hæstv. samgönguráðherra. Ég veit að hann mun leitast við að gefa okkur skýr svör um þetta. Ég spyr bara beint: Hvað voru margir að vinna í göngunum milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar og hvaða tækjabúnað þurfti þar til? Ég þykist svo sem hafa einhverja hugmynd um hvað þarf af tækjum í þetta. Það þarf gröfur og flutningstæki til að flytja það sem sprengt er út o.s.frv. og það þarf mannskap.

En ég átta mig einfaldlega ekki á þessu og þess vegna spyr ég þá sem kannski betur vita: Hversu mikill þensluvaldur eru fimmtíu menn sem bora holu í gegnum fjall við framkvæmdir þannig að þeir hafi áhrif á landsvísu, ekki síst ef það er á svæðum þar sem mikil þörf er á því að framkvæma svona verk og þar sem beinlínis er hægt að sýna fram á að framkvæmdin sem slík færir okkur verulegan ábata, ekki á árinu 2005, ekki á árinu 2006 og jafnvel ekki á árinu 2007 en það gæti verið að hún gerði það 2008 og 2009 og þar á eftir? Og er það ekki þá sem þenslunni á að vera lokið hér á landi?

Ég geri þetta að sérstöku umtalsefni vegna þess að mig óar við því ef það á að vera niðurstaðan að fara enn í frestunarferli á jafnarðbærum framkvæmdum og vegaframkvæmdum sem miða að því að losna við fjallvegi, fara undir fjöll og heiðar og/eða stytta vegalengdir með þverun fjarða þar sem það á við. Þess vegna vil ég að samgönguráðherra sé hér viðstaddur og leitist við að svara þessum spurningum sem ég veit auðvitað að hann mun reyna að gera af fremsta megni.

Ég vék fyrr í dag að sveitarfélögunum. Það er búið að ræða þau mál í dag. En ég vonast til þess að hæstv. ráðherra fjármála víki m.a. að beinni spurningu sem ég lagði hér fram. Hvað með það að létta af sveitarfélögunum eyðingu á mink t.d., draga úr þeim mikla kostnaði sem mörg sveitarfélög hafa af því og sem hefur fallið á þau í meira mæli á undanförnum árum en ásættanlegt er? Ef sveitarfélög sem mörg hver hafa slakan fjárhag eiga að forgangsraða því hvaða lögbundin verkefni þau eiga að framkvæma þá munu þau örugglega skilja minkinn og refinn eftir og reyna frekar að þjónusta fólkið beint eins og þeim ber skylda til í sveitarfélaginu. Þetta er spurning sem menn þurfa að velta fyrir sér.

Ég var aðeins byrjaður að ræða skattastefnuna og ætla að eyða lokaorðum mínum í þessari umræðu um hana. Ég vék að því í máli mínu að við í Frjálslynda flokknum hefðum lýst þeirri stefnu okkar fyrir síðustu kosningar að við teldum að hækka ætti persónuafsláttinn til þess að létta á skattbyrði þeirra sem lægri eru í tekjunum og hækka í raun afkomustig þeirra og rauntekjur og þar með auðvitað að hækka skattleysismörkin. Ég vék að grein sem forustumenn eldri borgara skrifuðu í Morgunblaðið á föstudaginn var. Þar drógu þeir það fram að skattleysismörkin væru núna rúmlega 71 þús. kr. en ættu, ef þau hefðu haldið verðgildi sínu síðastliðinn einn og hálfan áratug, að vera um 100 þús. kr. Ég tel að við verðum að horfast í augu við það að hækka verður persónuafsláttinn í áföngum á næstu þremur árum upp í það að hann verði að raungildi sá sami og hann var fyrir einum og hálfum áratug. Það væri virkilega mikil aðgerð fyrir þá sem hafa hér lægstu launin í landinu. Ég tel að það sé skattastefna sem mundi koma okkur vel og jafna kjörin í landinu.

Þess vegna segi ég það enn og aftur að ég er andvígur því að fara þá leið sem ríkisstjórnin hefur samþykkt í þessari lotu að fella niður hátekjuskattinn og að fara í flata prósentulækkun á tekjuskattinum um eitt prósentustig nú og boða síðan að áframhaldandi aðgerðir verði í því út þetta kjörtímabil í stað þess að horfa á hvað mundi koma þeim best sem lægst hafa launin. Ég tel tvímælalaust að í skattamálum væri það aðgerð varðandi persónuafsláttinn að hækka hann þannig að þeir lægst launuðu kæmu betur út.

Núverandi aðgerð í hátekjuskattinum og í skattþrepinu mun auðvitað leiða til þess að þeir sem hafa milljón á mánuði hagnast um 30 þús. kr. á mánuði, eða um það bil, en þeir sem hafa 100 þúsund kr. og minna hagnast um 1.500 kr. eða þar um kring og þeir sem greiða skatta, náttúrlega niður í ekki neitt. Þetta tel ég að séu óásættanleg stefnumörk og lýsi mig algerlega andvígan þeirri stefnu sem ríkisstjórnin hefur boðað í sambandi við skattamálin og tel að það væri mikið nær fyrir ríkisstjórnina að leita sátta um að deila þessu með öðrum hætti heldur en gert er í því fjárlagafrumvarpi sem hér er boðað. Og að fella hátekjuskattinn niður á næsta ári og á þar næsta ári niður í núll er auðvitað sérstök aðgerð fyrir þá sem hafa hæstu tekjurnar en ekki þá sem hafa lægri tekjur.

Ég held að ég láti þetta nægja enda tími minn að verða búinn og ég vonast til þess að hæstv. samgönguráðherra svari þeim spurningum sem ég var að velta fyrir mér. Meðal annars hvaða þensluáhrif fylgi því að 50 menn vinni við að hola fjall og einnig að hæstv. fjármálaráðherra víki að skattamálum og þeim spurningum sem ég lagði fram um þau og að stöðu sveitarfélaganna að því er varðar eyðingu refa og minka og að lokum almennt um stöðu sveitarfélaganna sem ég kom að meðal annars í fyrri ræðu minni í dag.