131. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2004.

fjárhagur sveitarfélaganna og tekjuleg samskipti þeirra og ríkisins.

[10:50]

Þuríður Backman (Vg):

Virðulegi forseti. Í fjárlagaræðu sinni lýsti hæstv. fjármálaráðherra forsendum fjárlaga og stefnumörkun ríkisstjórnarinnar fyrir næstu árin. Spáði hann miklum uppgangi á flestum sviðum þjóðarbúskaparins og sagt að uppbygging stóriðju ráði miklu um hagvöxtinn. Í ljósi þessa sé því mikilvægt að beita aðhaldi í ríkisfjármálum, draga úr framkvæmdum ríkisins og verja verulegum fjármunum til skattalækkana. Hæstv. fjármálaráðherra telur mikilvægt að horfa á heildarmyndina hvað varðar þróun ríkisfjármála. En ég tel að heildarmynd hæstv. fjármálaráðherra sé brothætt ef ekki er litið til allrar opinberrar þjónustu og fjárhagsstaða sveitarfélaganna tekin með inn í heildarmyndina þegar efnahagsaðstæður eru metnar.

Það er ljóst að á sama tíma og fjármálaráðherrann telur ríkissjóð mega við lækkun tekjuskatts þá safna mörg sveitarfélögin skuldum. Það er ekki vegna óráðsíu eða gæluverkefna heldur virðast þau mörg hver komin í vítahring sem þau eiga litla möguleika á að koma sér út úr að öllu óbreyttu. Það er ljóst að rekstur sveitarfélaganna varð þyngri við yfirtöku grunnskólans og þennan halla verður að rétta hið allra fyrsta. Það er mikilvægt að það sé gert áður en farið verður að undirbúa frekari verkefnaflutning til sveitarfélaganna.

En hvernig væri þá að undirbúa sameiningu sveitarfélaganna með því að færa yfir til þeirra einhvern hluta þeirra skatttekna sem ríkið áformar að afsala sér á næstunni? Mörg sveitarfélög eru í þeirri erfiðu stöðu að geta ekki sinnt lögboðnum verkefnum með þeim tekjustofnum sem þau hafa. Ástæðan er margþætt og misjöfn eftir sveitarfélögum en flest eiga þau það sammerkt að búa við fólksfækkun, lægra útsvar, sveiflur í atvinnumálum og þá sérstaklega við sjávarsíðuna, langvarandi atvinnuleysi, fækkun opinberra starfa meðal annars vegna aðhalds í ríkisrekstri og svo mætti lengi telja. Er nema von að fjárhagsstaða sveitarfélaganna blandist inn í kjaradeilu kennara?