131. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2004.

fjárhagur sveitarfélaganna og tekjuleg samskipti þeirra og ríkisins.

[11:07]

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Ég verð að segja að svör hæstvirtra ráðherra valda mér miklum vonbrigðum. Ég get ekki annað af þeim ráðið en að hæstv. ráðherrar séu enn á fullkomnu afneitunarstigi gagnvart þessu vandamáli. Nú er málsvörnin byggð á því að staða sveitarfélaganna sé mismunandi. Nú má ekki nota meðaltalið. Nú má ekki nota heildarafkomuna. Nú dugir ekki að leggja saman afkomu allra sveitarfélaga í landinu og fá út þá stöðu sem á að blasa við hverjum manni, að hún er óviðunandi og hefur verið svo um langt árabil. Þannig tala sömu menn og nota meðaltöl þegar þeir réttlæta skattaprógramm sitt. Þeir telja þau alls ekki nothæf þegar sveitarfélög eiga í hlut.

Vandi þeirra sem verst eru settir skánar ekkert við að meðaltalið liggi einhvers staðar. Staðreyndin er sú að tilburðir ráðherranna til að ýta sér undan hinu óþægilega í þessari umræðu eru satt að segja harla vandræðalegir. Hæstv. félagsmálaráðherra kvartaði undan einhliða og villandi umræðu um fjármál sveitarfélaga. Þetta er sami söngurinn og í hæstv. fjármálaráðherra í fyrradag sem vældi undan villandi og einhliða umræðu um fjárlagafrumvarpið. Þetta er að verða plagsiður hjá hæstv. ráðherrum, að láta eins og vandinn muni hverfa úr heiminum ef sendiboði hinna vondu tíðinda er skotinn. Það er ekki þannig. Ótíðindin hverfa ekki með því að fjarlægja sendiboðann. Vandi sveitarfélaganna er veruleiki sem hæstv. ríkisstjórn verður að horfast í augu við.

Staða sveitarfélaga er vissulega mismunandi en hið dæmigerða sveitarfélag, að meðalstærð á landsbyggðinni, býr við gríðarlega erfiðleika. Stundum er það vegna fólksfækkunar og vegna þess að meðallaun á landsbyggðinni eru að dragast aftur úr. Þar með lækka tekjur sveitarfélaganna. Mörg sveitarfélög hafa orðið að taka á sig útgjöld til að verja atvinnulífið og fleira mætti nefna í þeim dúr.

Samskipti sveitarfélaganna við ríkisvaldið hafa öll verið á þá leið að það er von að menn séu tortryggnir gagnvart gjörsamlega innihaldslausri (Forseti hringir.) viljayfirlýsingu sem virðist til þess eins gerð (Forseti hringir.) að reyna að halda gangandi einhverri tiltrú á verkefninu.