131. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2004.

Fjáraukalög 2004.

76. mál
[11:28]

fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (S) (andsvar):

Herra forseti. Það liggja fyrir betri upplýsingar nú en þá. Þess vegna er tekið tillit til hinna nýjustu upplýsinga sem eru betri og nákvæmari en áður var og þess vegna er gerð þessi tillaga. Þetta er nú ósköp einfalt mál.