131. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2004.

Fjáraukalög 2004.

76. mál
[11:54]

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég var eiginlega fullkomlega sáttur við þetta svar. En af því að hv. þm. sagðist eiga meira eftir þá kem ég í andsvar svo að hann geti haldið áfram.

Það að ríkisvaldið styðst við meiri hluta Alþingis gefur því að sjálfsögðu ákveðið vald. En það þarf að sjálfsögðu að svara fyrir sig bæði gagnvart meiri hlutanum og eins gagnvart stjórnarandstöðunni. Fjárveitingavaldið er eftir sem áður á Alþingi í formi þess að menn þurfa að svara fyrir allar þær breytingar sem þeir óska eftir að fá gerðar á fjárlögunum. Þótt þeir hafi til þess meiri hluta þá þurfa þeir að sjálfsögðu að svara meiri hlutanum líka.