131. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2004.

Fjáraukalög 2004.

76. mál
[12:48]

Jón Gunnarsson (Sf):

Frú forseti. Ég vil taka undir það sem aðrir hafa sagt sem komið hafa hér á undan mér að það er að sjálfsögðu gott fyrir okkur að hafa þetta frumvarp hér nú til umfjöllunar samhliða því að við erum að fjalla um fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2005. Það munar talsvert miklu að hafa þetta allt saman á borðinu á sama tíma og sparar ábyggilega talsvert í umræðunni seinna meir að geta gert þetta með þessum hætti.

Ég vil jafnframt taka undir það sem fram kom í ræðu hv. formanns fjárlaganefndar, Magnúsar Stefánssonar, að við eigum að velta því fyrir okkur í alvöru hvort ekki væri rétt að leggja fjáraukalagafrumvarpið fram tvisvar ári einfaldlega vegna þess að ég held að fjármálaráðuneytið mundi með því uppfylla, miklu frekar heldur en nú er, tilkynningarskyldu sína til fjárlaganefndar um óvænt útgjöld sem upp hafa komið og óvænt útgjöld sem bregðast þarf við og greiða jafnvel fljótlega án þess að heimildir séu fyrir því í fjárlögum.

En frumvarpið sem hér er lagt fram og við erum að velta fyrir okkur ber því að sjálfsögðu órækt vitni að mikil þensla er á Íslandi og við verðum að segja hlutina eins og þeir eru, að ríkissjóður nánast veður í peningum vegna þeirra miklu umsvifa sem eru í efnahagslífinu.

Auðvitað vita menn og það hefur margverið sagt að partur af þessum miklu tekjum ríkissjóðs kemur til vegna þess að viðskiptahallinn er sú vél sem drífur áfram þessa miklu tekjuaukningu og að hluta til getum við sagt að það gengur meðan ekki stoppar. En við getum ekki og eigum ekki að byggja útgjöld til framtíðar á viðskiptahalla eða tekjum af viðskiptahalla eins og mér sýnist að við séum að gera núna og jafnvel í fjárlögunum fyrir árið 2005, heldur hljótum við að þurfa að velta því fyrir okkur að þegar þannig árar verðum við að gera betur í því að taka til hliðar fjármuni til þess tíma þegar ekki er um jafnmiklar tekjur að ræða vegna þess að viðskiptahallinn er þá ekki að búa til neinar tekjur fyrir ríkissjóð.

Auðvitað er það ánægjulegt fyrir þann sem passar ríkiskassann og það liggur við að við getum sagt að hann sé orðinn skattakóngur Íslandssögunnar. Ekki það að hæstv. fjármálaráðherra sé að borga hæstu skatta og sé skattakóngur þess vegna heldur vegna þess að þeir skattar sem nú er verið að innheimta eru með hæstu sköttum sem við höfum séð sem hlutfall af vergri landsframleiðslu og við hljótum að velta fyrir okkur hvenær nóg er komið. Að vísu höfum við séð tillögur um það að lækka tekjuskatt lítillega í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2005 en ríkissjóður er að fá geysimiklar tekjur um þessar mundir.

Þessar miklu tekjur þýða að það er verið að skila fjáraukalagafrumvarpinu sem við ræðum hér með afgangi þrátt fyrir að bein útgjöld ríkisins umfram fjárlög aukist um rúma 6,3 milljarða á þessu ári. Þetta eitt og sér hlýtur að sýna okkur hvers konar gósentíð ríkir nú í fjármálum ríkisins því þrátt fyrir að útgjöld aukist um 6,3 milljarða þá er afgangur á þessu fjáraukalagafrumvarpi. Gleði okkar má þó ekki fara úr böndum og það er full ástæða til að inna eftir skýringum á sumu af því sem fram kemur í þessu frumvarpi og byrja þá á tekjum og þeim forsendum sem gengið var út frá þegar fjárlög ársins 2004 voru samþykkt.

Óneitanlega hlýtur maður að velta því yfir sér hvað orðið „stöðugleiki“ og hin mikla notkun ríkisstjórnarflokkanna á því orði þýði ef sú mikla breyting sem hér kemur fram er forsenda fyrir því og á að vera til marks um einhvern stöðugleika. Ef það sem blasir við okkur þar er stöðugleiki hvaða orð nota stjórnarherrarnir þá þegar hlutirnir fara á fleygiferð?

Á bls. 51 í frumvarpinu er tafla um breytingu þjóðhagsstærða frá fjárlögum og til þeirrar áætlunar sem nú gildir. Þar kemur fram að forsendur um breytingar á þjóðhagsstærðum standast ekki og eru langt frá því sem áætlað var og grundvallað á þegar fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2004 var lagt fram.

Auðvitað eiga fjárlög að byggja á eins vandaðri áætlanagerð og mögulegt er og það hlýtur að skipta okkur miklu máli að þegar við grundum okkar ákvarðanir um útgjöld á einhverri hagvaxtarspá sem hagspekingar senda frá sér að við getum treyst þeirri spá og þær breytingar sem menn gera ráð fyrir á þjóðhagsstærðum séu nálægt lagi. Auðvitað er alltaf betra, eins og er í þessu frumvarpi, að skekkjan sé í þá átt að tekjur aukist og verði meiri frekar en að það sé gjaldamegin. Það er háttur góðra búmanna að eiga fyrningar til að hlaupa upp á ef á þarf að halda. En fyrr má nú rota en dauðrota þegar við skoðum hvernig forsendurnar sem lagðar voru fyrir fjárlagafrumvarpinu 2004 standast.

Fjárlögin gerðu ráð fyrir því að einkaneyslan mundi aukast um 3,5%. Raunin er sú að hún eykst um 7%, 3,5 prósentustigum meira en ráð var fyrir gert eða um 100%. Hún eykst helmingi meira en ráð var fyrir gert. Auðvitað sjáum við það svo þegar við förum að skoða frekari tölur eins og vaxtabætur sem verið er að borga að lántaka einstaklinga hefur aukist talsvert mikið og er það partur af því að slík einkaneysla getur aukist með þessum hætti, en samt sem áður hlýtur að vera eitthvað að áætlunargerð sem nær ekki að vega og meta og mæla væntanlega breytingu á einkaneyslu milli ára með nákvæmari hætti en hér kemur fram.

Það er ekki bara einkaneyslan sem spáin mælir ekki eða mælir kolvitlaust heldur flestar aðrar þjóðhagsstæðir og ég ætla, með leyfi forseta, að renna aðeins yfir þær stærðir og hvernig þær spár hafa staðið sem ég er hér að tala um.

Það var gert ráð fyrir að fjárfesting mundi aukast um 8,5%. Hún eykst um 17,24%. Hún eykst um 103% umfram það sem ráð var fyrir gert, vöxturinn er meiri en helmingi meiri en ráð var fyrir gert. Þjóðarútgjöldin, heildarþjóðarútgjöld, það var gert ráð fyrir að þau mundu vaxa um 4%. Þau vaxa um 8% samkvæmt þeirri spá sem nú liggur fyrir, aftur 100%, aftur helmingi meiri vöxtur en ráð var fyrir gert.

Í þessari áætlun er gert ráð fyrir að hagvöxturinn verði 5,5%. Þegar við vorum að ræða fjárlög þá var gert ráð fyrir 3,5%. Það munar tveimur prósentustigum eða tæpum 60% sem vöxturinn er meiri en ráð var fyrir gert.

Innflutningurinn á vöru og þjónustu, það sem stendur kannski að mestu leyti að baki viðskiptahallanum, hvernig hefur hann þróast og hvernig var spáin um þennan innflutning? Jú, það var gert ráð fyrir að innflutningur mundi aukast um 5,75% þegar við vorum að ræða fjárlögin fyrir árið 2004, en hann eykst um 12,75%, um 7 prósentustigum meira eða 122%.

Ekki er undarlegt að menn velti fyrir sér hvernig í ósköpunum eigum við — þegar við erum að fara yfir fjárlög og velta fyrir okkur með hvaða hætti við eigum að útdeila þeim tekjum sem inn koma — að geta gert það á einhvern vitrænan hátt þegar áætlanir fjármálaráðuneytisins um þróun helstu þjóðhagsstærða er með þeim hætti sem hér kemur fram?

Ef við skoðum spá um launa- og verðlagsforsendur, hvernig meðalbreytingin er í prósentum, þá er gert ráð fyrir því í fjárlagafrumvarpinu árið 2004 að ráðstöfunartekjur á mann mundu aukast um 5%. Þar fóru þeir nálægt lagi. Nú tala menn um að þær aukist um 4,5% þannig að þær aukist aðeins minna en ráð var fyrir gert. Þarna kemur lítils háttar mínus en ekki í tekjunum.

Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann, það var gert ráð fyrir að hann yrði 2,5%, mundi aukast um 2,5%. Áætlunin núna gerir ráð fyrir vexti upp á 1,5% og þarna munar ansi miklu, heilu prósenti.

Atvinnuleysi er síðasta talan í þessum þjóðhagsstærðum sem ég ætla að fara yfir. Það var gert ráð fyrir að það yrði 2,5% á ársgrundvelli. Það eykst í núverandi spá, og nú gerir fjármálaráðuneytið ráð fyrir því að það verði 3% og hækki um hálft prósentustig. (Forseti hringir.)

(Forseti (JóhS): Forseti vill vekja athygli ræðumanns á því að það er áformað að gera hér fundarhlé klukkan eitt. Forseti gerir ráð fyrir að ræðumaður eigi eftir einhvern tíma enn með mál sitt þannig að forseti vill spyrja hvort þingmaðurinn vilji ljúka ræðu sinni núna eða hvort hann vilji velja hentugan stað til þess að fresta ræðu sinni á næstu einni eða tveimur mínútum.)

Ég held, virðulegi forseti, að það sé bara ágætis staður í ræðunni til að fresta henni núna og við tökum upp þráðinn þar sem frá var horfið eftir mat.

(Forseti (JóhS): Forseti þakkar fyrir það og þá er fundi frestað til klukkan hálftvö.)