131. löggjafarþing — 5. fundur,  7. okt. 2004.

Stéttarfélög og vinnudeilur.

5. mál
[16:01]

Guðmundur Hallvarðsson (S):

Virðulegi forseti. Hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson flytur hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur sem hann gerir ekki í fyrsta skipti.

Ég hef lýst því yfir áður að málið er umhugsunarvert og segi að allt sem leiða má til réttrar áttar af hálfu löggjafans sé rétt að skoða og því eðlilegt að frumvarpið sé skoðað. Hins vegar eru nokkrar hliðar á þessu máli eins og hv. þm. Ögmundur Jónasson kom inn á og þá einkum varðandi það hvernig afturvirkni samningsins eigi að gilda ef til verkfalls er boðað.

Ég minnist þess tíma þegar afturvirkni kjarasamninga var algeng, en ég tel að það sé eðlilegt að það þurfi að vera og það vanti inn í ákvæði laga um stéttarfélög og vinnudeilur einhvern hvata til þess að menn hraði sér að samningaborði til að leysa þau deilumál sem uppi eru.

Nú hefur verið sett upp mjög flókið kerfi um hvernig menn eigi að bera sig að þegar kjarasamningar renna út. Það eru ýmsar áætlanir sem menn eiga að setja upp, starfsáætlanir, hvernig menn ætla að funda o.s.frv. Það er allt gott svo langt sem það nær en það hefur ekki skilað neinum árangri að mér finnst horfandi á þetta úr nokkurri fjarlægð núorðið.

Það er alveg rétt sem hér hefur komið fram að það þarf auðvitað að skoða málið, hvernig það megi verða til þess að sífelldum verkföllum linni, sem sem betur fer hafa að vísu ekki verið mörg á umliðnum árum ef frá eru talin verkföll sjómanna sem hafa því miður of oft verið leyst með lagasetningu þar sem ég hef þó haldið mig ávallt fjarri og ekki tekið þátt í að greiða atkvæði með lagasetningu á deiluaðila.

Ég lýsi mig þannig þenkjandi gagnvart þessu frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur að það sé eðlilegt og rétt að skoða það, og eins og ég sagði áðan, ef það má leiða til réttrar áttar varðandi þá aðila á vinnumarkaðnum sem í átök fara eða ef í það stefnir, sé það af hinu góða.

Hér hefur líka verið nokkuð rætt um mál sem snýr að deilu sjómanna nú sem hefur gengið mjög sérkennilega og með ólíkindum að sú staða skuli vera komin upp sem nú hefur gerst varðandi Sólbak á Akureyri. Ég get ekki annað en tekið undir það sem hér hefur verið sagt og deili áhyggjum mínum með þeim mönnum sem hér hafa talað um það mál.

Í fyrsta lagi að verði málið með þeim hætti að einstakir útgerðarmenn nái því fram að vinna gegn sjálfum sér og gegn eigin orðum, eins og hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson kom inn á með tilvísun til ártalsins 2000 þegar LÍÚ, Landssamband íslenskra útvegsmanna, bannaði sérsamninga, bannaði aðra samninga en þá sem heildarsamtök sjómanna og útvegsmanna gera.

Ef þetta nær fram gæti það náð til kennaradeilunnar. Hvernig mundu leiðandi menn í sveitarfélögum, í kennarafélögunum líta á það ef eitt sveitarfélag sem væri illa statt gerði kjarasamning sem væri lakari en sá samningur sem er í gildi í dag, vegna þess að kennarar og íbúar þess sveitarfélags vildu losna undan þeim samtökum sem þeir eru í og teldu að sveitarfélag sitt væri hætt komið og það væri rétt að fara þá leið? Eða á hinn veginn, að sveitarfélag sem væri mjög vel statt tæki upp á því að gera kjarasamninga sem væru betri og fyllri en ýtrustu kröfur kennara eru í dag? Það segir sig sjálft að þetta væri hið versta mál, ekki fyrir þá sem semdu best, heldur mundi það verða til þess að hér yrði bara upplausn.

Þess vegna er mjög nauðsynlegt að þessi deila við sjómenn fari ekki á þann veg sem einn tiltekinn útgerðarmaður óskar og jafnvel heyrist hljóð úr horni útgerðarmanna að þeim finnist það mál ekki vont sem upp er komið.

Menn úti í bæ hafa velt vöngum yfir því um hvað þessi deila snúist eiginlega og hvort sjómenn séu bara ekki orðnir staðnaðir í kjarasamningum vegna alls þess tæknibúnaðar sem er orðinn á skipunum. Og það hefur verið ein aðalábending þess útgerðarmanns sem gerir út Sólbak að sjómenn séu orðnir staðnaðir í kröfum sínum, og vegna búnaðar og tæknibúnaðar skipanna fleygi öllu fram þar. En sé hins vegar litið til slysatíðni sjómanna á umliðnum árum segir sagan okkur allt annað. Ég er hér með tölur frá 2001 þar sem 344 sjómenn slösuðust, 2002 voru þeir 413 og 2003 um 460 manns. Hvar er tæknibúnaður skipanna sem hefur leyst slysatíðnina af hólmi, hvar er tæknin? Og þegar nú er boðað að það eigi að fækka á umræddum togara um fjóra menn a.m.k. þá býð ég ekki í það. Það er ógæfa fyrir sjómenn og ógæfa fyrir þjóðarbúið ef bjóða á mönnum upp á að það séu þrír karlar á annarri vaktinni að taka inn troll á þessu stóra skipi. Stóraukinn, stórkostlegur tæknibúnaður eða réttara sagt tröllaukinn spilbúnaður, vond veður og válynd og þrír menn eigi að taka inn trollið. Ég held að menn hafi ekki hugsað þessa hugsun til enda. Ég væri samþykkur því að mönnunarákvæði fiskiskipanna yrðu skoðuð með tilliti til þeirrar miklu slysatíðni sem við blasir.

Væri slysatíðni sjómanna önnur en raun ber vitni væri kannski eðlilegt að skoða þessi mönnunarákvæði, en slysatíðni sjómanna segir okkur að skipin eru ekki ofmönnuð. Eða er eitthvað annað að í rekstri fiskiskipanna sem gefur tilefni til þess að hugsa: Er stjórnunin um borð í skipunum ekki eins og hún á að vera? Ekki er slysatíðnin vegna þess að fólkið sé of margt. Það er ljóst.

Ég er hræddur um að kauphéðnar í landinu yrðu ósáttir við það ef KB-banki breytti reglum sínum um verðbréfamarkaðinn á einni nóttu og segði: Ja, þetta er bara okkar útfærsla og þið verðið að sætta ykkur við hvernig með er farið. Nei, í þessu þjóðfélagi eru sett lög, það eru settar reglur og menn vinna eftir ákveðnum reglum. Það gengur ekki að einn ákveðinn aðili göslist fram og segi: Þetta er það sem ég vil, allar aðrar skoðanir eru fáránlegar og steinrunnar og hugmyndir mínar skulu lamdar í gegn með illu eða góðu, þvert ofan í það sem sjómenn hafa samið um, þvert ofan í það sem Landssamband íslenskra útvegsmanna gaf út í skriflegri tilsögn til Sjómannasambandsins árið 2000.

Virðulegi forseti. Auðvitað blandast þessi deila sjómanna inn í þá umræðu sem hér fer fram um frumvarp til laga um stéttarfélög og vinnudeilur, svo viðkvæmt sem það mál er. En ég ætla að láta þetta verða mín lokaorð: Auðvitað eiga menn að setjast niður og ræða málin og leysa þau. Ég tel að það þurfi að skoða það frumvarp sem hér liggur fyrir og hef sagt það áður, ef það má að leiða til þess að menn vinni með öðrum hætti en nú er gert, með öðrum hætti en nú er sagt fyrir um að settar skuli á blað einhverjar starfsáætlanir um hvenær menn ætli að hittast og ræða saman en ekkert annað fylgir. Það gengur ekki. Það þarf einhverjar aðrar leiðir til þess.

Að endingu þetta: Ég vona að deiluaðilar í kringum þetta eina skip á Akureyri setjist niður og ræði málið og leysi það því að orð eru til alls fyrst.