131. löggjafarþing — 6. fundur,  11. okt. 2004.

Tilkynning um dagskrá.

[15:06]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Forseti vill geta þess að kl. 15:30 eða þar um bil fer fram umræða utan dagskrár um skipun nýs hæstaréttardómara. Málshefjandi er hv. þm. Lúðvík Bergvinsson og settur dómsmálaráðherra, Geir H. Haarde, verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.