Virðisaukaskattur.
Halldór Blöndal (S) (andsvar):
Herra forseti. Ég veit ekki hvort ástæða er til að rifja upp við þetta tækifæri að meðan hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir var ráðherra var hún algjörlega andvíg því að lækka matarskattinn.
En vegna ummæla fyrrverandi ráðherrans áðan, að með því að fara þá leið sem hér er lögð til, að lækka virðisaukaskatt úr 14% í 7%, segir hv. þm. að hægt sé að lækka matarverð, lækka matarskattinn um 30%. Það er óhjákvæmilegt að þingmaðurinn útskýri betur þennan talnaleik sinn. Við svona venjulegir menn, sem ekki vorum í stærðfræðideild, kunnum ekki hina æðri stærðfræði en auðvitað hljóta að vera mjög flóknar talnaraðir á bak við þessa fullyrðingu hv. þm.
Ég veit að hv. þm. getur náð fram lækkun á landbúnaðarvörum með því að leggja niður allan stuðning við íslenska bændur, sem er eitt af helstu áhugamálum Alþýðuflokksins gamla og mig minnir þess flokks sem hv. þm. stofnaði á sínum tíma og mátti heyra það á ræðu hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur þegar hún talaði um hvernig hægt væri að lækka matarverð og vísaði til Evrópusambandsins að áhugi hennar (Gripið fram í.) er mjög fyrir því — við erum að tala um þá hluti — nema hv. þm. hafi ekki skilið það sem menn voru að segja.
En aðalatriðið í mínu máli er: Hvernig ætlar hv. þm. að lækka matarverð um 30% með því að lækka virðisaukaskatt um 7%?