131. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2004.

Virðisaukaskattur.

6. mál
[15:07]

Jóhanna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. síðasti ræðumaður er þekktur fyrir mikla útúrsnúninga og ég held að hann hafi gert margt betur um ævina en að stúdera skattamál eða hvernig er hægt að lækka verð á matvælum vegna þess að það er alveg augljóst að hv. þm. hefur ekki lesið skýrslu forsætisráðherra sem var lögð fram að beiðni hv. þm. Rannveigar Guðmundsdóttur þar sem ítarlega er farið ofan í þetta mál. Hann hefur greinilega ekki haft fyrir því að kynna sér þingmálið sem hér er lagt fram þar sem við förum ofan í það hvernig hægt er að lækka matvælaverð. Það er ekki svo lítið ef hægt er að lækka vísitöluna um 0,7–0,8% samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar. Það skilar sér alveg örugglega í bættum kjörum fólksins.

Að Samfylkingin sé á móti bændum er svo mikil fjarstæða að varla er eyðandi orðum í það. Bændur eru fátæk stétt og kjör þeirra hafa ekki mikið batnað í þessi átta eða tólf ár sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur stjórnað. Það hefur ekki verið gert mikið til að taka á milliliðunum í landbúnaði sem eru helsta orsökin fyrir því að landbúnaðarverð er hátt. Við viljum setjast yfir það með stjórnarflokkunum að bæta kjör bænda og það höfum við verið að setja fram tillögur um, en við teljum að milliliðirnir taki allt of mikið í sinn hlut og því þarf að breyta.

Hvað varðar lækkun á matarskatti á sínum tíma þá gleymir hv. þm. því alltaf að þegar var verið að einfalda skattkerfið voru skattleysismörkin hækkuð verulega en þau hafa rýrnað svo í tíð núverandi ríkisstjórnar að þau eru núna 72 þús. kr. en ættu að vera 100 þús. kr. ef þau hefðu fylgt verðlagsþróun, vegna þess að það sem ríkisstjórnin hefur gert er að lækka skattleysismörkin til þess að geta skilað meiri peningum, meira fjármagni til þeirra betur settu. Það hafa verið hennar ær og kýr alveg frá því að hún tók við í ríkisstjórn og því þarf auðvitað að breyta.