Virðisaukaskattur.
Pétur H. Blöndal (S):
Herra forseti. Í dag hefur farið fram mjög góð umræða og í henni kristallast mismunandi sjónarmið manna til skattlagningar. Í fyrsta lagi hvort skattlagning eigi að vera til að afla ríkinu tekna eingöngu eða hvort nota eigi skattkerfið til að jafna kjör manna. Ég er á þeirri skoðun að menn eigi fyrst og fremst að líta á skattkerfið sem tekjuöflun en láta aðra þætti velferðarkerfisins um að jafna kjör manna. Það er mjög dýrt að nota skattkerfið til þess því það dregur úr frumkvæði og dugnaði.
Varðandi spurninguna um hvort virðisaukaskattur skuli lækkaður um 5 milljarða eða tekjuskattur um 5 milljarða á ári þá hljóta báðar leiðir að hafa nokkurn veginn sömu áhrif til að kynda undir verðbólgu og þenslu. Þau orð sem féllu í upphafi umræðunnar með vísan til ASÍ, að verið væri að hella olíu á eldinn með skattalækkunartillögum ríkisstjórnarinnar, eiga ekki síður við um svona tillögur. Ég hugsa að það sé meira að segja meiri þensluhvati af lækkun virðisaukaskatts um sömu krónutölu vegna þess að það er alltaf ákveðinn sparnaðarvilji hjá þeim sem hafa hærri tekjurnar og sparnaðargeta.
Mér finnst alltaf jafnslæmt, ég ætla að biðja menn að hugleiða það, þegar menn tala um fátækt fólk eins og það sé eitthvað persónueinkenni. Menn segja nánast í sama orði: maðurinn er bláeygur og fátækur. Auðvitað getur maðurinn breytt þessu með fátæktina. Við getum breytt umgjörð sem skapar fátækt. Maðurinn getur t.d. aflað sér menntunar. Hann getur lagt harðar að sér. Hann getur sótt um annað starf. Þetta er ekkert persónueinkenni. Þetta er ekki fastmótaður hópur. Alls ekki.
Mitt markmið er að berjast gegn fátækt með því að fækka í hópi þeirra fátæku og gera þeim kleift að verða ríkari, að hafa hærri tekjur. Þetta er ekki fastur hópur sem sumir tala um sem eitthvert náttúrulögmál.
Það má vel vera að við á hinu háa Alþingi, við þingmenn, höfum búið til aðstæður sem gera fólk fátækt. Við búum til fátæktargildrur, búum til velferðarkerfi og bótakerfi sem er þess eðlis að það borgar sig ekki fyrir fólk að vinna. Maður heyrir það mjög oft. Það borgar sig ekki fyrir fólk að mennta sig. Það hefur bara ekkert upp úr því. Það er betra að sitja bara heima og gera ekki neitt en að rembast við að hækka tekjur sínar með ýmsum hætti. Þetta er mjög skaðlegt fyrir einstaklinginn og einnig skaðlegt fyrir þjóðfélagið. Þarna rekast á þessi tvö mismunandi sjónarmið sem við búum við.
Tekjuskattslækkunin minnkar fátæktargildruna. Hún minnkar það að menn séu fastir í ákveðnu kerfi, hvort sem það eru húsaleigubætur, vaxtabætur, atvinnuleysisbætur eða hvað það nú er og geti ekki bætt stöðu sína vegna þess að skatturinn, plús allar tekjutengdu bæturnar, eru svo háar að það borgar sig ekki að vinna. Þarna greinir á milli.
Munurinn á tillögum ríkisstjórnarinnar, 1% lækkun á tekjuskatti og því að lækka virðisaukaskatt um sömu krónutölu, sem kemur að meðaltali jafnt út fyrir alla, er sá að annað stækkar kökuna, þ.e. hvetur menn til dáða, hvetur menn til að vinna meira, hættir að draga úr þeim og gerir þeim fátæku mögulegt að verða ríkari en hitt heldur stöðunni niðri. Menn þurfa ekki að afla sér eins mikilla tekna. Það borgar sig ekki frekar en núna. Á þessum leiðum er því reginmunur.
Það hefur verið markmið ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins í þrettán ár að stækka kökuna, hætta að vera eins upptekin af því að skipta henni og menn voru áður þótt sumir séu það enn þá. Sumir eru svo uppteknir af því að skipta kökunni að hún minnkar og minnkar. Nei, við viljum stækka kökuna. Það hefur tekist. Laun á Íslandi hafa hækkað sem hvergi annars staðar. Ég fullyrði það.
Atvinnulífið blómstrar. Verðbréfamarkaðurinn og allt blómstrar vegna þess að menn hafa bætt skilyrðin, lagað skilyrðin sem stækka kökuna. Tekjuskattslækkunin er þáttur í því.
Áðan fóru fram miklar umræður um hve sú lækkun á virðisaukaskatti sem hér er um rætt lækki vöruverð mikið. Það er hægt að reikna þetta upp á krónur og aura, ég gerði það áðan. Þær vörur sem falla undir 14% skatt lækka niður í 7% skatt, það lækkar þær um 6,14%. Það er mjög einfalt og ekkert meira um það að segja, hvorki um 30% eða eitthvað annað heldur bara þetta.
Ef við tækjum 5 milljarðana sem skatturinn á að lækka um og deildum þeim á alla Íslendinga þá væru það 17 þús. kr. á mann á ári, eða 1.437 á mánuði. Þeir sem hafa 143 þús. kr. á mánuði og fá 1% lækkun á tekjuskatti fá einmitt þá tölu þannig að allir fyrir ofan fá meira. Allir fyrir ofan 147 þús. kr., ef við reiknum með því að þetta sé jafnt á þá, fá meira. Auðvitað eru alls konar samsetningar, t.d. einstæðir foreldrar með börn. Inni í þessu eru hjón með eitt barn, tvö börn eða ekkert barn. En gróft séð mundu velflestir verkamenn í ASÍ fá meira með 1% tekjuskattslækkun en með þessari lækkun á virðisaukaskatti. Meðaltekjur fólks í ASÍ, samkvæmt upplýsingum kjararannsóknarnefndar á fyrsta ársfjórðungi 2004, voru 256 þús. Það fólk fær lækkun upp á 2.560 á mánuði með 1% lækkun á tekjuskatti, þ.e. meðaltalið. Auðvitað eru margir fyrir ofan og einhverjir fyrir neðan, að sjálfsögðu. Þetta er meðaltal.
Fyrir ASÍ-fólk held ég að sé ekki spurning, nema kannski þá sem hafa mestu ómegðina og lægstu launin, að hagstæðara sé að fá 1% lækkun á tekjuskatti en lækkun á virðisaukaskatti. Fyrir utan það eykst hvatinn fyrir menn til að vinna meira, bæta stöðu sína og hætta að vera fátækir. Það er mitt meginmarkmið, að fólk sjái hvata til þess að hætta að vera tekjulágt og hætta að vera fátækt. Mér finnst að menn ættu að vinna að því almennt í staðinn fyrir að reyna að búa til svo gott kerfi að enginn hvati verði til þess lengur að bæta stöðu sína.
Ég hef áður nefnt að skattkerfi sem tekur tillit til allra þátta, barnabætur, barnaföt og barnamatur o.s.frv., lagar eitthvað sem aldraðir þurfa sérstaklega eða lagar eitthvað sem börn þurfa sérstaklega, er of flókið. Við ætlum að vera góð við þessa og við ætlum að vera góð við hina. Það gerir kerfið svo flókið að þeir sem eiga að nota það kunna ekki á það. Ég fullyrði að fjöldi manns á Íslandi veit ekki hvaða bótum hann á rétt á í kerfinu. Það er svo flókið og væri að æra óstöðugan að kynna sér það hvernig bótakerfið á Íslandi er.
Möguleikar á svindlinu aukast líka. Hvað eru barnaföt t.d.? Skattur upp á 14%, það koma upp undarlegar rósir í því dæmi í matvöruverslunum, hvort maturinn er fullsoðinn eða ekki, hvort hann er iðnaðarvara eða hrá matvæli o.s.frv., hvort hann eigi að falla undir 14% eða 24,5%. Þarna er fullt af jaðartilfellum og þeim mun ekki fækka þegar barnafötin verða sérstaklega skattlögð. Ég minni á að sum „börn“, 16–17 ára glímukappar, þurfa ansi stór föt svo maður gangi ekki lengra og sumir fullorðnir þurfa ansi lítil föt.
Núverandi ríkisstjórn hefur unnið í því að gera skattkerfi einföld. Ég minni á erfðafjárskattinn og ég minni á fjármagnstekjuskattinn sem hefur valdið því, þó að hann hafi verið lækkaður stórlega á söluhagnað t.d., að tekjur ríkissjóðs hafa stórhækkað. Þrátt fyrir lækkun á skatti á söluhagnaði úr tæpum 50% niður í 10% hefur ríkissjóður miklu meiri tekjur upp úr því. Það er bara þekkt lögmál í skattafræðum.
Við erum búin að lækka eignarskatta og ætlum að lækka þá enn frekar, fella þá niður. Svo var nefndur hátekjuskatturinn. Hann var reyndar skattur til bráðabirgða en var alltaf framlengdur aftur og aftur. Það er ekki verið að leggja hann niður, það er verið að hætta við að hafa hann áfram. Það er mikill munur á því að leggja niður einhvern skatt sem er varanlegur eða að láta skammtímaskatt falla niður eða hætta við að framlengja hann. (Gripið fram í: Og hann sé settur á um stundarsakir.) Já einmitt, um stundarsakir.
Við höfum lækkað skatt á hagnað fyrirtækja. Mér sýnist nú bara að tekjur ríkissjóðs af þeim skatti ætli aldeilis að blómstra, enda er enginn skattur eins kvikur og hagnaður fyrirtækja. Ef einhver efast um það skal ég taka að mér hvaða háhagnaðarfyrirtæki sem er og gefa mér mánuð í að eyða hagnaðinum, ekki málið. Hagnaður fyrirtækja er afskaplega kvikur og fljótur að hverfa ef hann er skattlagður um of.
Munurinn á þessum tillögum um lækkun á virðisaukaskatti og tillögum ríkisstjórnarinnar er einmitt sá að við erum að vinna að því að stækka kökuna, en þessi tillaga gengur út á að breyta henni, skipta henni enn frekar og er upptekin af því.
Varðandi stöðu mála í ríkisstjórninni sem hefur verið rætt dálítið um hérna, þá er virðisaukaskatturinn til viðræðu milli stjórnarflokkanna. Það er ekki komin niðurstaða í því, bæði eru alls konar sjónarmið innan flokkanna og svo milli flokkanna sem eftir á að vinna úr. Það eru t.d. þau sjónarmið: Hvað á að gera kerfið flókið? Það er réttlætissjónarmið sem mælir með því að gera kerfið mjög flókið en þegar það verður flókið er það bara vinna fyrir lögfræðinga. Það getur varla verið markmið.
Menn eru að vinna í þessu, þetta er ekki ágreiningsefni, það eru skiptar skoðanir eins og gengur en það er stefnt að því að endurskoða virðisaukaskattinn fyrir utan lækkunina á tekjuskattinum.
Meginmarkmiðið í mínum huga er náttúrlega að lækka tekjuskattinn og gera fólki kleift að vinna án þess að því sé refsað fyrir og þannig að kakan stækki.