131. löggjafarþing — 7. fundur,  12. okt. 2004.

Virðisaukaskattur.

6. mál
[17:33]

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. fyrir síðust einkunnina sem hann gaf mér. Þá er það á hreinu. Ég er ekki jafnaðarmaður og hef aldrei þóst vera það. Ég trúi á mátt samkeppni og einstaklinginn.

Það að erfitt sé að rökræða við mig og draga upp Don Kíkóta í því sambandi finnst mér ekkert voðalega málefnaleg umræða. Alls ekki.

Að draga það líka upp að ég hafi haft eftir bónda sem hringdi í mig að hann gæti alveg lifað af 90 þús. kr. á mánuði en ætti samt eitthvað í Bændahöllinni sem hann gæti ekki nálgast finnst mér heldur ekki mjög málefnalegt.

Varðandi olíuna á eldinn þá nefndi ég það sérstaklega í ræðu minni. Ég nefndi sérstaklega að það væri sama fyrir verðbólguna, hagvöxtinn og þensluna hvort við setjum 5 milljarða í að lækka virðisaukaskatt eða setjum 5 milljarða í að lækka tekjuskatt. Fólkið hefur þessa 5 milljarða til ráðstöfunar. Það er meira að segja nefnt í tillögunni að tekjutap ríkisins verði væntanlega minna vegna þess að það auki veltu, sem sagt auki þenslu.

Ég rökstuddi meira að segja að það kynni að vera meiri þensluvaldur að lækka virðisaukaskattinn, vegna þess að þeir sem hafi háu tekjurnar hafi meiri sparnaðargetu til að spara sinn hluta skattalækkunar.

Að öðru leyti held ég að ég þurfi ekki að svara hv. þm.